Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Explorer • Um Explorer 

09. september 2010

Skoða PDF: Explorer bæklingur

Ford jeppar eru byggðir til að gera meira.

Nýr Ford Explorer er með meiri kraft, meiri styrk, meiri þægindi, fleiri möguleika innandyra og meiri öryggisbúnað. Í nýjum Ford Explorer færðu öflugri en sparneytnari 6 strokka eða 8 strokka vélar, stífari grind, hljóðlátari bíl, ný sæti og nýja ISS öryggiskerfið (Intellignet Safety System). Nýr Ford Explorer veitir þér öryggistilfinningu sem þú þarft til að uppfylla ævintýraþrána og njóta dagsins til fullnustu. Ford Explorer er mest seldi jeppi í Ameríku síðastliðin 14 ár. Veldu Explorer.

Ford Explorer er meira en 31% hljóðlátari á malarvegum og yfir 26% hljóðlátari á grófari vegum, miðað við eldri módel af bílnum. Í nýja Explorer eru notuð betri efni til hljóðeinangrunar og vindurinn flæðir betur um hliðarspeglana. Endurhannaður fjöðrunar- og stýrisbúnaðurinn tryggir betri aksturseiginleika, það má segja að nýr Explorer faðmi götuna eins og sannur sportjeppi á að gera. Að innanverðu hefur allt verið endurhugsað og endurhannað. Lögun sætanna, virkni þeirra og þægindi. Þú munt elska útlínur þeirra og hversu auðvelt það er að koma sætinu fyrir í réttu stillingunni. Mælaborðið hefur fengið nýtt yfirbragð, ný efni, áferð og fallegri mælar auka á akstursánægju og vellíðan. Veldu nýjan Explorer.

Öflugri og sparneytnari vélar í nýjum Ford Explorer

Explorer er til með 292 hestafla, 4,6 lítra, 24 ventla V8 vél og í fyrsta skiptið í þessum flokki bíla, 6 gíra sjálfsskiptingu, sem gerir hann ekki aðeins kraftmeiri en nokkru sinni fyrr, heldur líður hann áfram ljúfar og hljóðlátar, þökk sé meistaralega smíðuðum vélarhlutum. Til að toppa þetta er V6 vélin hönnuð til að mæta ULEV II stöðlunum. (Ultra Low Emissions Vehicle II) sem eru staðlar settir til að draga úr mengandi efnum í útblæstri.

Öryggi og góð aksturshæfni

Nýr Ford Explorer er með mikin öryggisbúnað sem staðalbúnað. Raunar er hann hannaður til að mæta öllum þeim kröfum sem bandarísk yfirvöld gera vegna óhappa sem bifreiðin gæti lent í. Staðalbúnaður í Explorer, er AdvanceTrac með RSC (roll stability control) en það er rafstýrt jafnvægiskerfi sem samanstendur af 4 aðal þáttum: ABS hemlum, stöðugleikakerfi, gripstýringu og veltivörn. Þetta kerfi aðstoðar ökumann við að stýra bifreiðinni við krefjandi aðstæður.

Það þarf aðeins að ýta á einn takka til að breyta Explorer úr 4x4 AUTO, sem jafnan er ekið í við hefðbundnar aðstæður, í 4x4 LOW og þá er Explorer tilbúin fyrir ófærð og krefjandi aðstæður. Þú notar 4x4 HIGH, ef þú þarft á auknu veggripi að halda, til dæmis í hálku eða snjó. Ford Explorer 4x4 hefur það sem þarf, til að flytja þig þangað sem þú vilt fara.

Ford Explorer Limited með Sync

Með því að velja Ford Explorer Limited getur þú valið háþróaða raddstýrða samskiptakerfið Sync frá Microsoft með bílnum. Með Sync getur þú stjórnað stafræna tónlistarspilaranum og blátannarsímanum (Bluetooth) með röddinni í stað þess að teygja þig í stjórntakkana. Kynntu þér málið nánar undir Ítarefni hér fyrir neðan.

Komdu í Brimborg. Veldu Ford Explorer.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli