Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Expedition • Um Expedition 

05. febrúar 2012

Skoða PDF: Expedition bæklingur

Ford Expedition dekrar við þig og farþegana

Ford Expedition er eitt af flaggskipum jeppanna frá Ford. Rúmgóður og fullur búnaðar sem dekrar við þig og farþegana. Þýður, hljóðlátur, kröftugur og ákveðinn – enda búinn 8 strokka vél með rúmlega 300 hestöflum. Þú kemst auðveldlega ferða þinna utan alfararleiðar í Ford Expedition því veghæð undir lægsta punkt er tæpir 24 cm. Þú velur um fimm mismunandi búnaðargerðir í Ford Expedition; ein þeirra er eins og sniðin fyrir þig!

Munaður og þægindi

Í Ford Expedition ráða munaður og þægindi ríkjum. Fjórhjóladrifið er tölvustýrt og við hina gríðarlega öflugu 5,4 l SOHC 3V V-8 vél er fjögurra gíra sjálfskipting með yfirgír sem gerir aksturinn hnökralausan og þýðan og veitir þér tækifæri til tafarlausra viðbragða þegar á þarf að halda. En að auki eru að finna fjölmörg önnur atriði í Ford Expedition sem leika við þig og farþegana þannig að öllum líði sem best á ferðalaginu. Meðal fáeinna atriða mætti til dæmis nefna vökva- og veltistýri, loftkælingu, vönduð hljómflutningstæki, dimmer í inniljósum, rafstýrðar rúður, hraðastilli, tímastilli á rúðuþurrkum að framan og aftan og margt fleira. Staðalbúnaður í Ford Expedition er til þess fallinn að gera aksturinn að hreinu ævintýri.

Lestu fréttirnar

þri. 7. nóv. 2006
Ford Expedition 2007 Meira »
Fleiri fréttir um Expedition

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli