Ford Transit Connect er ábyggilegur og endingargóður vinnuhestur sem vinnur jafn hörðum höndum og þú. Hann er sérlega hagkvæmur í rekstri, fjölhæfur og afkastamikill. Ford Transit Connect er öruggur og með góðum aðbúnaði fyrir ökumann. Transit Connect fæst í tveimur útfærslum; S og L, þar sem meiri lofthæð er í L útgáfunni og flutningsdyr hærri. Sjá nánar Verð og búnað.
Ford Transit Connect er frábær vinnufélagi, sem gerir þér kleift að sinna ólíkum og fjölbreyttum verkefnum við vöruflutninga. Flutningsrýmið er vel hannað og þar má auðveldlega koma fyrir rekkum til hliðanna eða hlaða hann tveimur Eurobrettum með vörum. Sjá nánar Verð og búnað.