Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Focus • Um Focus  Prenta þessa síðu

09. september 2010

Skoða PDF: Focus bæklingur

Fáðu þér öruggari og umhverfisvænni Ford Focus

Nýr Ford Focus er kostum prýddur. Nýtt og glæsilegt útlit, framúrskarandi tækni og ríkulegur útbúnaður eru aðeins örfá dæmi af mörgum sem mæla með Focus. Frábær fjölskyldubíll sem er gaman að eiga, gott að keyra og hagkvæmt að reka. Svo er hann líka vænni fyrir umhverfið.

Settu fókus á Ford

Focus hefur verið mest seldi bíllinn frá Ford í þessum vinsæla flokki fjölskyldubíla í Evrópu. Þetta er fjórða kynslóðin og jafnframt sú öruggasta og umhverfisvænsta til þessa. Hönnun hennar hefur verið felld að ávölum línum nýja útlitsins frá Ford og er þessum breyttu áherslum að utanverðu síðan fylgt þétt eftir í hönnun bílsins að innanverðu með vandaðra efnisvali og nýrri sætagerð. Útkoman er enn stílhreinni Focus, endurhannaður frá grunni með hliðsjón af þeim sem vilja aðeins það besta.

Meiri búnaður

Sem fyrr einkennist búnaðarstig Focus af metnaði, eins og sjá má á því að ESP stöðugleikastýrikerfi með spólvörn, EBD hemlajöfnun og EBA hjálparhemlun er meðal staðalbúnaðar. Alltaf er þó rúm fyrir áhugaverðar nýjungar og hefur Ford gætt Focus ýmsum nýjum hæfileikum, eins og Easy Fuel búnaðinum, sem kemur í veg fyrir að röngu eldsneyti sé dælt á bílinn, hvort heldur bensín- eða dísilútgáfan á í hlut. Þú þarft því ekki að hafa áhyggjur af því að fara eldsneytisvillt með tilheyrandi tjóni, þó að þú skiptir yfir í enn umhverfisvænni Ford Focus TDCI. Þá er Focus kominn með LED díóðuljós að aftan, nýtt EHPAS rafstýri með þremur þyngdarstillingum í aksturstölvunni, bremsuljós í afturrúðuna og Isofix barnastólafestingar í aftursæti.

Meiri hagkvæmi og umhverfisvænni

Ford hefur líkt og aðrir bílaframleiðendur lagt mikla áherslu á að þróa nýja og betri vélartækni með tilliti til bæði eldsneytisnotkunar og mengunar, án þess þó að það dragi úr aksturseiginleikum eða –ánægju. Nýr Focus er hér engin undantekning og eru CO2 gildi í útblæstri 1,6 TDCI vélarinnar með þeim lægstu sem hafa sést. Í m.a. breskum bíladómum hefur verið farið lofsamlegum orðum um Focus í þessu tillit, sem bæði sparneytinn og umhverfisvænni kost.

Meira öryggi

Nýr Focus flaug í gegnum öryggisprófun EuroNCAP með 5 stjörnu toppeinkunn, enda ríkulega búinn öryggisbúnaði. Öryggispúðarnir eru fjórir og öryggispúðatjöld eru til beggja alhliða. Skynvætt IPS öryggiskerfi (Intelligent Protection System) stýrir af stærðfræðilegri nákvæmni passífum öryggisbúnaði á borð við öryggispúða og –belti allt eftir tildrögum. Allt ferlið fer fram á sekúndubrotum og byggir í grófum dráttum á því, að þróaður hugbúnaður metur í samspili við þéttriðið net skynjara hvernig öryggisbúnaður bílsins geti sem best varið þá sem í honum eru gegn alvarlegum áverkum, ef slys ber að höndum. Þá er Focus búinn hálkuviðvörun, þriggjapunkta öryggisbeltum í öllum sætum og rafstýrðum bílbeltastrekkjurum ásamt háls- og bakhnykksvörn í framsætum.

Meiri þægindi

Í þægindum er Focus í sérflokki. Má þar nefna sem dæmi enn betri hljóðeinangrun sem heldur veg- og vélarhljóði í lágmarki, rafdrifna hæðarstillingu á ökumannssæti og hæðarstillingu á farþegasæti frammi í ásamt mjóbaks- og hitastillingu á báðum framsætum. Þá er Focus búinn vönduðum hljómflutningstækjum, fjarstýrðum samlæsingum með ræsivörn og þremur þyngdarstillingum og aðdrætti á stýri. Þá er Focus enn fremur með heilhitun á framrúðu og hliðarspeglum, búnaður sem kemur sér afar vel á frostköldum vetrarmorgnum.
Valbúnaðurinn er einnig ríkulegur og má þar nefna loftþrýstingsnema í hjólbörðum (sem er einnig fyrirtaks öryggisbúnaður), 230 v innstungu fyrir fartölvuna, leikjatölvuna eða DVD spilarann, lyklalaust aðgengi og margt, margt fleira.

Betri aksturseiginleikar

Nýr Focus er í senn þýður og skemmtilegur í akstri. Þegar í fyrstu kynslóðinni af Focus setti Ford metnaðarfullar kröfur um aksturseiginleika með Control Blade fjölfjöðrunarkerfinu og breitt hjólhafið gerir hann einstaklega stöðugan. Að viðbættri nýju PowerShift skiptingunni frá Ford og EHPAS rafstýrinu sem er með þrjár þyngdarstillingar eða standard, comfort og sport, má segja að allt leggist á eitt um að veita Focus framúrskarandi aksturseiginleika.

Frábærir dómar

Dómar evrópskra bílablaðamanna hafa nánast allir sem einn verið afar jákvæðir. Nýja kynslóðin er að þeim eldri ólöstuðum m.a. sögð bæði fallegri og betur búin. Þá sé hún vandaðri að allri gerð og augljóslega klár í þann harða slag sem stendur um toppsætin í flokki fjölskyldubíla.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli