Ævintýrakonan Lexie Alford (@LexieLimitless) setti í dag opinbert met með því að vera fyrsta manneskjan sem ekur í kringum allan heiminn á rafknúnu farartæki, nýjum Ford Explorer rafmagnsjeppa.
Lexie ók nýjum Ford Explorer yfir marklínuna sem var í Nice, Frakklandi, bílalestina leiddu eldri goðsagnarkenndir Ford bílar ásamt núverandi gerðum sem koma til með að móta framtíðarstefnu fyrirtækisins.
Verið velkomin á fjórhjóladrifna daga Ford á Íslandi! Við frumsýnum nýjan og endurhannaðan fjórhjóladrifinn Ford Transit Custom sendibíl og bjóðum fjórhjóladrifna Ford bíla á afmælistilboði í tilefni 60 ára afmælis Brimborgar
Ford á Íslandi frumsýnir með stolti glænýjan og virkilega vel endurhannaðan Ford Transit Custom dagana 22. febrúar – 2. mars á Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Sérfræðidómnefnd skipuð 25 atvinnubílablaðamönnum kaus bílinn nú á dögunum sem sigurvegara IVOTY 2024. (International Van of the Year Award), og átti hann titilinn sannarlega skilið.
Ford Pro atvinnubílar hafa unnið sér tvöfaldan heiður með því að hljóta verðlaun fyrir alþjóðlega sendibíl ársins (IVOTY) og alþjóðlegu pallbílaverðlaunin (IPUA) fyrir glænýja Ford Transit Custom sendibílinn og nýja Ford Ranger pallbílinn. Ford Pro hefur nú unnið IVOTY og IPUA verðlaunin á sama ári í þriðja sinn – oftar en nokkur annar framleiðandi – eftir tvöfalda sigra árin 2013 og 2020. Verðlaunin voru veitt við sérstaka athöfn á Solutrans atvinnubílasýningunni í Lyon, Frakklandi, og þau staðfesta enn frekar frábæra stöðu Ford Pro sem leiðandi á evrópska atvinnubílamarkaðinum.
Jólin komu snemma í ár hjá Brimborg og Ford á Íslandi þegar við fórum og afhentum Krabbameinsfélagi Íslands styrk uppá 350.000 kr. Upphæðinni var safnað þannig að við hvern skráðan reynsluakstur á fagurbleikum Ford Mustang Mach-e rafmagnsbíl rann andvirði Bleiku slaufunnar (3.500 kr.) til málefnisins. Bleika slaufan er árlegt árverkni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.