Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Fiesta • Um Fiesta 

09. september 2010

Nýr Ford Fiesta – Njóttu alls þess besta en sparaðu samt!

Ford Fiesta fer sigurför um heiminn. Evrópubúar þekkja Ford Fiesta sem bílinn sem sameinar það helsta í lúxus og hagkvæmni. Eiginlega má segja að Ford Fiesta sé sparibaukur með stóra drauma og fyrsta viðkynning margra af þeim gæðum sem Ford bílar standa fyrir. Bílsins er nú beðið með eftirvæntingu í Bandaríkjunum sem fyrsta Evrópu lúxusbílsins í þessum stærðarflokki - þú þarft hinsvegar ekki að bíða neins. Sérpantaðu bílinn bara hjá Brimborg núna!

Fiesta færist framar

Nýr Ford Fiesta er eins og lítill eðalsteinn, hann er einstakur í augum eigandans, tákn einhvers stærra en hann er í raun. Ford Fiesta er holdgervingur þess sem við öll þurfum, frelsi til framkvæmda, sjálfbær gæði og almenn skynsemi – af hverju? Vegna þess að Ford Fiesta er hlaðinn lúxusbúnaði sem venjulega finnst bara í mun dýrari bílum, en er samt nettur, sparneytinn, lipur og þægilegur. Fáðu upplýsingar hjá söluráðgjafa Brimborgar um allan þann spennandi búnað sem hægt er að fá í Fiesta.

Láttu þér líða vel!

Kröfur bíleigenda hafa breyst nokkuð undanfarið. Eftirsóknin í minni bíla, eins og Ford Fiesta, hefur aukist gríðarlega. Það er vegna þess að vel útbúinn lítill bíll getur gert flest það sem mestu máli skiptir alveg jafn vel og margir stærri og dýrari bílar – en með mun minni tilkostnaði.
Útlit bílsins, að utan sem innan – skiptir í þessu sambandi miklu máli og þar er Fiesta kominn mjög framarlega miðað við samkeppnina. Bíllinn er glæsilegur að utan, stílhreinn, kraftalegur – vel skorinn myndi einhver eflaust segja. Innanrýmið er hinsvegar hreinn munaður. Djúpir mælarnir með lokkandi lýsingunni, djúpu gleri og állitaðri umgjörðinni minna á skartgrip. Miðjustokkur mælaborðsins tranar sér bjóðandi fram en þar eru staðsettir vandaðir og glæsilega hannaðir hnappar til að stýra helsta búnaði bílsins eins og tónhlöðu og hljómtækjum.
Fjögurra tommu upplýsingaskjárinn setur punktinn yfir i-ið. Reyndar tekur hönnun skjásins mið af hönnun nýjustu farsímanna og er jafn auðveldur og skýr í notkun. Hægt er að fá USB og Bluetooh tengibúnað með raddstýringu til viðbótar við skjástýringuna. Komdu og þreifaðu á efnisprufum og sjáðu litamöguleikana.

Fimm Stjörnur hjá Euro NCAP

Öryggið er fyrsta flokks í Ford Fiesta enda hefur miklu verið kostað til að ná góðum árangri þar. Ekkert er eins mikilvægt og fólkið í bílnum og umhyggja fyrir þér og þínum veitir þér nauðsynlegt öryggi og vellíðan. Ford Fiesta hlaut fimm stjörnur hjá Euro NCAP enda er bíllinn hlaðin öryggisbúnaði eins og líknarbelgjum í mælaborði, við hliðarglugga og við hné, ESP stöðugleikastýrikerfi með spólvörn, ABS hemlalæsivörn með EBD hemlajöfnun og EBA nauðhemlunarkerfi, IPS öryggiskerfi ( Intelligent Protection System) og ISOFIX festingum fyrir barnabílstóla.

Góðar lausnir

Það er fleira sem skiptir máli í nýjum Ford Fiesta enda hafa hönnuðir Ford teygt sig langt til að létta þér lífið. Þú þarft til dæmis ekki að óhreinka þig við að losa bensínlok þegar þú fyllir á bílinn, þú þrýsti einfaldlega á hnapp og bensínlokið opnast og þú fyllir beint á bílinn. Fyrir þá sem þurfa daglega að leggja í þröng stæði er hægt að sérpanta innfellanlega hliðarspegla líkt og í mun dýrari bílum. Svo er auðvitað leikur einn að leggja Ford Fiesta í stæði því hann er með rafmagnsátaki á stýrið sem gerir það lauflétt á lítilli ferð og nálægðarskynjari að aftan er einnig fáanlegur. Ef þér finnst lyklalaust aðgengi skipta máli, þá má að sjálfsögðu fá það í bílinn og þá fylgir flottur ræsihnappur með í kaupunum.

Ending, ánægja og akstursgleði

Ford Fiesta á eftir að koma þér á óvart því það er afar sjaldgæft að bílar í þessum stærðarflokki séu án málamiðlana. Ford Fiesta er byggður til að endast lengur og því hefur verið fjárfest í gæðum. Hvar sem þú lítur á bílinn sérðu gæðalegar útfærslur á smáum sem stórum atriðum sem oftast má bara sjá í mun dýrari bílum. Augað nemur þetta – prófaðu bara hvort þú sérð ekki gæðin líka. Hugaðu sérstaklega að innréttingunni, framljósunum og þokuljósunum eða djúpa gljáanum á lakkinu. Gæðin eru alls staðar sjáanleg enda kannski ekki skrítið – á prófunartímabili Ford Fiesta var bílunum ekið sem samsvarar 87 hringjum í kringum jörðina í hitastigi frá mínus 40 gráðum og alveg upp í 80 gráður í plús.

Í sátt og samlyndi

Hægt er að sérpanta sjö útgáfur af Ford Fiesta. Allt frá 1,2 lítra bensínbíl í grunnútgáfu yfir í 1,6 lítra TDCi dísilbíl sem skilar 90 hestöflum, 200 NM af togi og er hann visthæfur að auki – hann losar aðeins 98 g/km af CO2 og fær því frítt í stæði í 90 mínútur samkvæmt skilmálum Reykjavíkurborgar.
Það er því eiginlega sama hvernig þú lítur á það, í Ford Fiesta ertu öruggur og í góðum félagsskap – kíktu við og fáðu að kynnast honum!

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli