Nýr Ford Transit AWD hjálpar þér að viðhalda traustri ímynd
Það er stundum sagt að „fyrstu kynni“ ráði oft úrslitum um það hvort rekstraraðilar ná að stofna til nýrra viðskiptasambanda eða ekki. Láttu nýjan Ford Transit Van AWD hjálpa þér við að viðhalda jákvæðri og traustri ímynd. Traust ímynd og nýtískuleg en þó sígild ásýnd hins nýja Ford Transit AWD bera þér gott vitni um fagmennsku í starfi. Skoðaðu nýjan Ford Transit Van AWD; hann hreinlega kallar á þig: „komum okkur að verki!“ Þú hefur val um 16” álfelgur, meðal langan Transit AWD, eða langan AWD auk mismunandi þakhæða og þar með rúmmál hleðslurýmis.
Mikið rými og góð staðsetning stjórntækja
Pláss í farþegarými hins nýja Ford Transit AWD er vítt og sérlega þægilegt og hagkvæmt fyrir ökumanninn, þar sem öll stjórntæki eru staðsett á hárréttum stað. Nýjasta tækni er svo notuð til að gera lífið sem þægilegast auk þess sem þú getur valið úr fjölda aukahluta, svo sem loftkælingu, hraðastilli og staðsetningartæki, svo eitthvað sé nefnt.
Ford Transit Van AWD er framúrskarandi lausn fyrir rekstraraðila sem vilja halda forystu sinni á markaðnum með traustum og ábyggilegum vinnufélaga. Komdu og skoðaðu nýjan Ford Transit Van AWD.