Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Galaxy • Um Galaxy  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Skoða PDF: Galaxy

Og allur heimurinn með Ford Galaxy

Nýr Ford Galaxy er bíllinn sem tekur fjölskylduna alla á sporbaug um gæði og lúxus. Hver fjölskyldumeðlimur er stjarna í augum hönnuða Ford Galaxy. Í fjölskyldubíl er ein helsta skilgreining gæða og lúxus rýmið sem bíllinn býður upp á. Ford Galaxy býður einmitt allsgnægtir á því sviði því nóg er plássið.

Ford Galaxy er því sem heimili á hjólum fyrir fjölskylduna. Á dæmigerðu heimili er nálægðin við aðra mikil. Innan veggja heimilisins deilir fólk verkum á milli sín, tómstundum, hvíld, skyldum og ábyrgð, hver og einn hefur sýnir þarfir en fjölskyldan sem heild hefur líka þarfir. Ford Galaxy mætir einmitt þörfum fjölskyldunnar á hennar forsendum. Ford Galaxy er í rauninni lífsform hreyfanleika fjölskyldunnar.

Fyrsta farrými fyrir sjö

Ford Galaxy er hannaður með lífshætti fjölskyldunnar í huga. Í bílnum er góð lofthæð og nægt fótarými í öllum þremur sætaröðunum en meira skal til svo sambúðin í bílnum gangi vel upp. Flestir bílar af þessari stærð bjóða upp á fremur lítil þægindi. Í Ford Galaxy er hinsvegar allt til alls svo allir séu ánægðir.

Hugsaðu þér. Í Ford Galaxy eru fjölmargar mismunandi geymslur og með Fold Flat System (FFS) er möguleiki á mörgum hentugum útfærslum í innanrýminu. Þannig er Ford Galaxy, sveigjanlegur fyrir þig – fyrsta farrými fyrir allt að sjö manna fjölskyldu!

Natni við smáatriði

Hvað er það sem gerir fjölskyldubíl að sérlega góðum fjölskyldubíl? Það er ekki eingöngu plássið og þægindin. Rúmgott og þægilegt umhverfi, góður staðalbúnaður, þrauthugsaðar lausnir sem miða að þægindum hvers og eins, það er það sem skiptir mestu máli. Heildarmynd gæðanna sést í því hve mikil natni er lögð í smáatriðin.

Það sem skiptir máli fyrir sambýli fjölskyldumeðlimanna eru hlutir eins og góð miðstöð sem getur veitt lofti til allra farþega, sæti í fullri stærð fyrir hvern og einn sem hægt er að renna fram og aftur og halla bakinu á. Ef að flytja skal annað en fólk ræður Galaxy að sjálfsögðu við það líka. Ísskápar, þvottavélar og sófar verða ekki óyfirstíganlegt vandamál þegar búið er að leggja niður sætin því þá er farangursrými bílsins yfirdrifið.

Það er til staður fyrir flest sem fjölskyldan tekur með sér í ferðalög í Ford Galaxy. Í gólfum, lofti, mælaborði og hliðum bílsins er fjöldi geymsluhólfa. Það er því nóg pláss fyrir vegahandbókina, tónhlöðuna, leikjatölvuna, ferðaspil, teppi, púða, vatnsflöskur, nesti og hvaðeina í nýjum Ford Galaxy.

Öruggt val fyrir fjölskylduna

Þegar fjölskyldubíll er valinn þá er það öryggið sem er flestum hugleikið enda eru engar krókaleiðir farnar þegar um öryggi fjölskyldunnar er að ræða. Með nýjum Ford Galaxy fæst meira rými, betri lausnir, meiri útbúnaður, meira öryggi og hagkvæmari bíll. Vandaðar innréttingar og lúxus hafa heldur ekki verið látin víkja fyrir þægindum og rými eins og algengt er í mörgum öðrum bílum í þessum flokki. Öryggi fjölskyldunnar er því tryggt án málamiðlana í Ford Galaxy.

Galaxy býður einnig upp á ýmsar sérsniðnar lausnir eins og vandað miðstöðvarkerfi sem getur stýrt hitanum með fjögurra gráðu mun á milli bílstjóra og farþega í framsæti. Einnig verður hægt að fá margmiðlunar DVD kerfi í bílinn með tveimur skjáum, þráðlausum heyrnartólum og fjarstýringu – það væsir ekki um yngstu meðlimi fjölskyldunnar þegar slíkur búnaður er á næsta leiti, ekki einu sinni í langferðum!

Að sjálfsögðu er hægt að tengja nýjustu tækni eins og USB minniskubba og tónhlöður við hljómkerfi bílsins. Með aukabúnaðinum Ford Convers+ er ennfremur hægt að sjá og velja lög með hjálp TFT skjásins í mælaborði bílsins. Fyrir þá allra tækniþyrstustu má einnig fá Bluetooth búnað og lyklalaust aðgengi. Með Bluetooth búnaðnum má raddstýra mörgum aðgerðum eins og því að hringja úr GSM síma, stýra hljómkerfi eða leiðsögukerfi bílsins og jafnvel miðstöðinni.

Úthugsaðar lausnir til að mæta þörfum fjölskyldufólks má því víða sjá í hönnun Ford á Galaxy. Hægt er að velja um tvær 2,0 bensínvélar 140 og 203 hestafla. Einnig eru í boði þrjár sparneytnar 2,0TDCi dísilvélar 115 til 163 hestöfl með útblástur CO2 frá 152 g/km. Gírkassar eru fimm eða sex gíra beinskiptir en einnig er hægt að fá háþróaða sex gíra sjálfskiptingu sem skiptir um gír með tilliti til álags vélarinnar til að hámarka afl og sparnað.

Sambúð sem vit er í

Virkt og óvirkt öryggi Ford Galaxy er framúrskarandi líkt og í eldri kynslóð bílsins. Í Ford Galaxy eru gardínu-líknarbelgir fyrir alla farþega, en að auki hliðar og framlíknarbelgir fyrir bílstjóra og framsætisfarþega og hnélíknarbelgir fyrir bílstjóra. Hástyrktarstál er notað til að skapa öryggisskel utan um farþega og bílbeltastrekkjarar og ISOFIX festingar setja punktinn yfir i-ið. Á meðal aukabúnaðar er nýstárlegur búnaður eins og Blind Spot Information System (BLIS®) en það er kerfi sem nemur umferð sem ekki sést með góðu móti með speglum bílsins. Einnig er hægt að fá kerfi sem leyfir ökumanni að stilla inn leyfilegan hámarkshraða en með því móti lætur bíllinn ökumannin vita ef farið er yfir hámarkshraðann (Adjustable Speed Limiter Device (ASLD)).

Það má því vera ljóst að Ford Galaxy er öruggt val fyrir fjölskylduna. Í raun leggur Ford Galaxy allan heiminn að fótum þér. Ford Galaxy er stjörnum prýddur bíll fyrir stjörnur!

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli