Nýr Ford Ka – fáðu þér ferskan, flinkan, fiman og ferlega skynsamlegan bíl!
Nýr Ford Ka er loksins kominn til landsins, tilbúinn til að taka við kyndli hinnar mjög svo vinsælu eldri kynslóðar sem skynsamlegur en skemmtilegur smábíll. Ford Ka hefur vaxið, en heldur samt sínum litríka persónuleika – komdu bara og sjáðu!
Gömlu gildin í nýjum klæðum
Gömlu góðu gildin eru enn til staðar; frumlegheit og frískleiki í bland við þrautreynda tækni en í nýjum og nútímalegri búning. Hönnunin miðar að því að koma öllum helstu þægindum sem krafist er í nútímabíl fyrir í vel hönnuðum og smáum pakka. Nú rúmar farangursrými bílsins 224 lítra eða 20% meira en í eldri kynslóðinni og samt er bíllinn jafn stuttur og því jafn auðvelt að leggja honum í þröng stæði.
Leikandi lipur
Ford Ka lítur ekki út fyrir að vera sérlega stór, en hann er samt afar rúmgóður og þægilegur og mikil áhersla hefur verið lögð á notagildi bílsins. Rými fyrir aftursætisfarþega hefur aukist mikið og stökkið í aukabúnaði er gríðarlegt.
Ford Ka er ennfremur þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika, góða svörun, fjöðrun sem hentar vel íslenskum aðstæðum og viðbragð sem væri mun dýrari bíl til sóma. Það er því leikur einn að komast lipurlega leiðar sinnar í þéttri umferð borgarinnar, án þess að fórna plássi fyrir allt það helsta sem daglegt líf krefst og nýjum og spennandi búnaði sem léttir manni lífið.
Klæðskerasniðinn fyrir þig
Nýr Ford Ka auðveldar þér nefnilega lífið og er jafn ómissandi sem smábíll fyrir borgarbúann sem tónhlaðan er fyrir tónelskandi fólk. Reyndar geta þeir tónelskandi tengt tónhlöðuna sína við vandað hljómkerfi bílsins sem er með sex kröftugum hátölurum. Öryggið er að sjálfsögðu í fyrirrúmi, stöðugleikastýring (ESP), hemlalæsivörn (ABS) með hemlajöfnun (EBD), líknarbelgir, öryggiskerfi og ISOFIX festingar fyrir barnabílstóla.
Meiri möguleikar
Nauðsynlegur staðalbúnaður er góður en svo er hægt, og það er kannski það skemmtilegasta, að sérpanta allskonar góðgæti í bílinn eins og lakk með perluáferð, Bluetooth, USB tengibúnað og raddstýringu, öryggisgardínur, upphitaða framrúðu og framsæti, nálægðarskynjara og fjöldann allan af klæðskerasniðnum lausnum eins og leðurklæðningu eða skreytingum að utan og innan. Skoðið til dæmis Tattoo húðflúrs útlitið, Grand Prix sportútlitið og Digital Art hönnunina fyrir þá litaglöðu.
Lítill, léttur, ódýr og fimur
Fáanlegur aukabúnaður fyrir Ford Ka er mjög ríkulegur og á afar sanngjörnu verði og er bæði hægt að fá útbúnaðarpakka eins og Titanium pakkann eða nýjasta öryggisbúnaðinn eins og öryggisgardínur í hliðargluggana.
Þú verður í hópi þeirra öruggustu ef þú velur nýjan Ford Ka sem þinn næsta borgarbíl því hann heldur á lofti góðum gildum fjölskyldunnar og býr að úthugsaðri hönnun, þér til góða.