Lífið krefst mikils og mikils er krafist af lífinu. Það er að fjölmörgu að huga dagsdaglega og þegar vinnu, skóla, innkaupum og öðrum skyldum er lokið, vilja flestir njóta lífsins. Njóta augnabliksins, gera eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni eða vinum og ná slökun, hvort sem er líkamlegri eða andlegri.
Nýr Ford Mondeo færir þig nær takmarkinu. Hann veitir þér tækifæri til að komast í gegnum erilsaman dag á þægilegan og skilvirkan hátt og tekur svo við sem félagi í frístundunum.
Nýr Ford Mondeo er bíll fyrir þá sem vilja rúmgóðan, öruggan og þægilegan bíl sem rúmar fjölskylduna og allt sem henni fylgir, án þess að fórna akstursgleði og snerpu. Nýr Ford Mondeo er einn glæsilegasti Ford til þessa, enda var ekkert til sparað við endurhönnun á þessum vinsæla bíl, að innan sem utan. Vertu í hópi þeirra bestu. Veldu Ford.
Fegurðin kemur innanfrá
Innandyra er nýr Ford Mondeo sá fullkomnasti frá framleiðandanum til þessa og nálgast hann dýrari keppinauta sína eins og Audi, BMW og Benz.
Það má þó ekki dæma af yfirborðinu einu saman. Það býr nefnilega margt undir yfirborðinu í nýjum Ford Mondeo. Vélalínan er til að mynda einkar glæsileg og Ford Mondeo fæst með nýju EcoBoost vélunum. Með beinni innspýtingu, háþróaðri túrbótækni og tvöfaldri ventlastýringu veitir Ford EcoBoost sama afl og snúningsátak og stærri vélar. Sem dæmi er 1.6 lítra EcoBoost vélin, sem er 160 hestöfl, með meira afl en 2.0 lítra Duratec vélin, en eyðir minna og gefur frá sér minna af koldíoxíði.
Tæknibúnaður á heimsmælikvarða
Nýr Ford Mondeo er að vonum hlaðinn tækni- og öryggisbúnaði sem eykur öryggi, akstursánægju og þægindi.
Blindblettsviðvörun er aukabúnaður í nýjum Ford Mondeo. Þessi hátæknibúnaður gerir aksturinn afslappaðri á lengri leiðum. Ef annað farartæki ekur inn á blinda blettinn í hliðarspeglinum, varar kerfið þig við með blikkandi ljósi í speglinum.
Nýr aukabúnaður, Veglínuskynjarinn gerir ökumanni viðvart ef ekið er yfir miðlínurnar á veginum án þess að stefnuljósin séu kveikt. Kerfið sendir þrisvar stuttan titring í stýrið og gerir viðvart með aðvörunaljósi í mælaborði. Veglínuskynjari er aukabúnaður.
ECOnetic tæknin sparar
Nýr Ford Mondeo býður einnig upp á ýmsa Ford ECOnetic tækni svo sem Smart Regenerative Charging, þar sem hreyfiorka er nýtt til hleðslu, Ford Eco Mode, sem er tölvuforrit sem aðstoðar bílstjórann við að aka á sem vistvænastan hátt.
Sjálfvirkt Start-Stop kerfi sparar eldsneyti með því að stöðva vélina sjálfkrafa í hægagangi. Vélin endurræsist svo sjálfkrafa þegar tekið er af stað.
Active Grille Shutter system býðst nú í fyrsta skipti í Ford, en það er kerfi sem stjórnar loftstreyminu inn í vélarrýmið og minnkar þannig loftmótstöðu og stjórnar hitastiginu. Þetta bætir eldsneytisnýtingu og upphitun vélarinnar, og kemur sér sérlega vel í kaldara loftslagi.
Ný kynslóð gírkassa
Nýr Ford Mondeo fæst með sex gíra PowerShift sjálfskiptingunni sem gerir aksturinn öruggari, sparneytnari og einfaldlega skemmtilegri. Gírkassinn, sem er tvöfaldur, velur sjálfkrafa næsta gír miðað við inngjöf, skiptir á hárréttri stundu, og sparar þannig eldsneyti og hlífir vélinni. Ford PowerShift er líka með Sport stillingu sem gerir ökumanni kleift að skipta sjálfur um gír með einu handtaki, án þess að þurfa að kúpla frá.
Ford Mondeo er bíllinn fyrir þig og þína. Komdu í Brimborg og kynntu þér nýjan Mondeo. Vertu í hópi þeirra bestu. Veldu Ford. Spyrðu um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.