Leitaðu

Ford S-MAX, Bíll ársins 2007

Smelltu á flokk

Ford S-MAX • Um S-MAX 

05. febrúar 2012

Skoða PDF: S-Max Bæklingur

Þú velur þína eigin leið með S-MAX

Málamiðlun snýst um að gefa eftir hluta af kröfum sínum þegar ljóst er að þeim verður ekki fullnægt. Slíkar málamiðlanir eru daglegt brauð. Brauðið er búið á morgnana og þú þarft að sætta þig við eitthvað sem þig langar síður í. Uppáhalds flíkin er óhrein og þú verður að fara í eitthvað annað. Þig langar í heimsreisu en verður að sætta þig við sumarabústaðaferð.

Málamiðlanir eru þannig eðlilegur hluti af daglegu lífi okkar flestra. Ekki síst þegar kemur að því að velja bíl fyrir fjölskylduna. Flestir þurfa á einhverjum tímapunkti að snúa baki við sportlegri bílum og velja fjölskylduvænni bíl, sem í flestum tilfellum hefur enga sportlega eiginleika og er álíka þokkafullur og blautir lopasokkar.

Engar málamiðlanir

En ekki lengur. Nýr Ford S-MAX leysir vandann því Ford S-MAX er allt í senn; sportlegur, öflugur, vandaður, rúmgóður og hagnýtur. Nýr S-MAX er bíllinn sem sameinar sportlega eiginleika hagkvæmum fjölskyldubíl. Þú færð það besta úr báðum heimum og þarft ekki lengur að miðla málum. Þú færð ekki alltaf það sem þú vilt, en stundum færðu einmitt það sem þú þarft.

Ef þú efast komdu þá til okkar í Brimborg og upplifðu gæði Ford S-MAX. Sjáðu hvaða búnaður er fáanlegur í bílinn og skoðaðu hvernig verkfræðingar Ford hafa byggt inn í bílinn snjallar lausnir sem er ætlað að auðvelda þér lífið á hverjum degi.

Ford S-MAX hreyfir við þér. Jafnvel þó hann standi kyrr á sýningargólfinu. Þú sérð hvernig kvikir eiginleikar bílsins sjást í hönnun hans. S-MAX er kraftalegur, skorin og stæltur. Hönnun bílsins minnir á afl á hreyfingu.

Þetta kemur heim og saman við hugmyndafræðilega nálgun Ford á því hvernig nútíma fjölskyldubíll eigi að vera. Það er engin ástæða til þess að kasta fyrir róða hreyfanleika og ferskleika þó fjölskylduhagir krefjist þess að pláss sé fyrir fleira fólk og meiri farangur.


Alltaf pláss, fyrir allt og alla

Í Ford S-MAX fá allir eitthvað fyrir sig. Það væsir ekki um börnin í aftursætunum og ökumaðurinn fær bíl með framúrskarandi aksturseiginleika sem jafnast á það besta í sportlegum fólksbílum. Hvað innanrými varðar eru gæði Ford S-MAX nú á pari við mun dýrari bíla. Glæsileiki og tilfinning fyrir gæðum eru augljós einkenni nýrrar hönnunar S-MAX.

Fjölskyldugildin eru í hávegum höfð hjá Ford og því er um að ræða heilsteypta hönnun sem mætir þörfum allrar fjölskyldunnar. Aðeins þannig er hægt að forðast málamiðlanirnar.

Í S-MAX eru hirslur og hólf vítt og breitt um bílinn. Vantar þig pláss fremur en sæti fyrir sjö? Þá hefur S-MAX lausnina því með FFS kerfi Ford (Fold Flat System) er hægt að leggja niður allt að fimm sæti og fá þannig slétt gólf sem hentar vel til flutninga.

Upplifðu öryggi

Í leit að öryggi þurfa feður og mæður að taka sem flest með í reikninginn. Bílar þurfa að vera rúmgóðir, sparneytnir, vandaðir, öryggir, áreiðanlegir og skemmtilegir í notkun. Bíll sem uppfyllir öll þessi skilyrði veitir mikla öryggistilfinningu – mikla tilfinningu fyrir því að valið hafi verið rétt og skynsamlegt. S-MAX er einmitt bíll sem veitir slíka öryggistilfinningu.

S-MAX nýtur góðs árangurs í árekstrarprófunum og bíllinn býr yfir miklum óvirkum sem virkum öryggisbúnaði. Lífið er dýrmætt og það ber að vernda svo vel sem kostur er. En lífið er líka svo dýrmætt að manni ber að njóta þess. S-MAX tryggir öryggi þeirra sem vilja njóta lífsins á eigin forsendum eins og kostur er.

Nýr Ford S-MAX færir þér því tækifærin til að uppgötva nýjan heim, nýja tíma. Nýr S-MAX þýðir frelsi, friður og rólegheit.

Komdu og prófaðu

Hugsaðu þér hvernig þú vilt njóta S-MAX. Mundu að á hverju ári eru langt yfir hundrað frídagar. S-MAX getur þjónað þér vel hvort sem hann er farkostur þinn í vinnu og til skóla með börnin virka daga eða ævintýrafley með fjölskyldunni um helgar. Hvernig sem þú sérð daga þína fyrir þér er S-MAX tæknilega útbúinn til að leysa úr flest öllum vanda.

Við skorum á þig að koma til okkar og finna þína eigin tíðni í Ford S-MAX. Komdu og skoðaðu. Komdu og finndu. Komdu og upplifðu Ford S-MAX og þú munt sjá að það er ástæðulaust að velja málamiðlun og finna fyrir óánægju. Það eina sem þarf er að vera opinskár og gera sér grein fyrir eigin þörfum. Komdu og sjáðu hvort S-MAX er ekki einmitt bíllinn fyrir þig.


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli