Frá 2. ágúst 2007 er frítt í bílastæði fyrir visthæfar bifreiðar í Reykjavík í 90 mínútur í senn. Sérstök bílastæðaskífa mun fylgja visthæfum bifreiðum. Slíkar bifreiðar eru sparneytnar á eldsneyti og hafa minni útblástur koltvísýrings (CO2) en aðrar bifreiðar.
Eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík er að umbuna bílstjórum sem menga minna með því að aka um á visthæfum bifreiðum í borginni. Ókeypis verður í gjaldskyld stæði fyrir visthæfar bifreiðar nema í bílastæðahúsum og stæðum sem eru lokuð með hliði. Þessar bifreiðar standast ákveðnar kröfur um útstreymi koltvísýrings og eldsneytisnotkun. Nánar tiltekið:
Bensínbílar: Eyðsla í blönduðum akstri er 5,0L/100km eða minna og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.
Díselbílar: Eyðsla í blönduðum akstri er 4,5L/100km eða minna og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.
Aðrir orkugjafar: Tvíorkubílar (hybrid) sem nota t.d. metan/bensín eða etanól/bensín og eyðsla fer ekki yfir 5,0L/100km í blönduðum akstri og CO2 útblástur að hámarki 120 g/km.
Sérstök bílastæðaskífa hefur verið útbúin af þessu tilefni. Skífan er sett í framrúður visthæfra bifreiða og skal vísir hennar stilltur á þann tíma sem lagt er. Bílastæðaverðir geta þá séð hvað bifreiðinni hefur verið lagt lengi. Eigendur slíkra bifreiða geta nálgast skífurnar hjá bílaumboðunum og á það einnig við um bifreiðar sem þegar eru á götunum og uppfylla skilyrðin.
Ef þú átt nú þegar bíl frá Brimborg sem uppfyllir skilyrði Reykjavíkurborgar komdu þátt í Brimborg og náðu í bílastæðaskífu fyrir bílinn þinn. Söluráðgjafar Brimborgar veita allar upplýsingar.