Ford Edge AWD stendur á brúninni og brúar bilið milli sportbíls og jeppa. Ford Edge rúmgóður sportjeppi með drifi á öllum hjólum, AWD, og er ekki fyrir þá sem vilja bara hanga heima fyrir framan sjónvarpið. Ford Edge er fyrir lífsglaða og virka einstaklinga sem verða stöðugt að finna lífsorku sinni farveg. Allt frá fyrstu kynnum skynjar þú orkuna og viljann sem stafar frá þessum glæsilega sportjeppa. Örugg stjórnun, nákvæmt viðbragð og öryggisbúnaður af hæstu gæðum eru allt eiginleikar sem Ford Edge færir þér á silfurfati. Ford Edge er alltaf á tánum, on the edge, bíðandi með óþreyju eftir næstu skipun þinni.
Öflug og hagkvæm vél
Edge er með 265 hestafla, 3,5 lítra, 24 ventla, V6 vél og 6 gíra sjálfsskiptingu, sem gerir hann mjög kraftmikinn og skilar honum á um aðeins 7,2 sekúndum úr kyrrstöðu í 100 km./klst. Þrátt fyrir aflið þá líður Ford Edge áfram ljúft og hljóðlega, þökk sé meistaralega smíðuðum vélarhlutum. V6 vélin er hönnuð til að mæta ULEV II stöðlunum. (Ultra Low Emissions Vehicle II) sem eru staðlar settir til að draga úr mengandi efnum í útblæstri.
Öryggi og góð aksturshæfni
Þegar kemur að öryggisbúnaði og tæknilegum útfærslum getur þú treyst Ford Edge fyrir velferð þinni. Edge er búinn öllu því nýjasta og besta í öryggismálum enda hefur búnaður bílsins hlotið einkunnina 'Top Safety Pick' af IIHW (Insurance Institute Highway Safety) í Bandaríkjunum vegna framúrskarandi öryggis. Vitnisburður IIHW er ákaflega mikilvægur því kröfur IIHW eru einhverjar þær ströngustu í heimi og reiða neytendur sig í auknum mæli á niðurstöður prófana IIHW þegar nýr bíll er valinn.
Staðalbúnaður í Edge, er AdvanceTrac með RSC (roll stability control) en það er rafstýrt jafnvægiskerfi sem samanstendur af 4 aðal þáttum: ABS hemlum, stöðugleikakerfi, gripstýringu og veltivörn. Þetta kerfi aðstoðar ökumann við að stýra bifreiðinni við krefjandi aðstæður.
Til að auka enn á aksturseiginleika Ford Edge er í honum tölvustýrt fjórhjóladrifskerfi sem vaktar stöðugt veggripið og deilir átaki vélarinnar á þau hjól sem mest hafa gripið. Að jafnaði, við góðar aðstæður, ekur Ford Edge í framdrifi sem leiðir til minni eldsneytisnotkunar.
Ford Edge Limited með Sync
Með því að velja Ford Edge Limited getur þú valið háþróaða raddstýrða samskiptakerfið Sync frá Microsoft með bílnum. Með Sync getur þú stjórnað stafræna tónlistarspilaranum og blátannarsímanum (Bluetooth) með röddinni í stað þess að teygja þig í stjórntakkana. Kynntu þér málið nánar undir Ítarefni hér fyrir neðan.
Veldu Ford Edge sportjeppa - öruggan bíl með frábæra aksturseiginleika. Komdu í Brimborg.