Nýr Ford Explorer Sport Trac er með meiri kraft, meiri styrk, meiri þægindi, fleiri möguleika innandyra og meiri öryggisbúnað. Í nýjum Ford Explorer Sport Trac færðu öflugri en sparneytnari 6 strokka eða 8 strokka vélar, stífari grind, hljóðlátari bíl, ný sæti og nýja ISS öryggiskerfið (Intellignet Safety System). Nýr Ford Explorer Sport Trac veitir þér öryggistilfinningu sem þú þarft til að uppfylla ævintýraþrána og njóta dagsins til fullnustu.
Ford Explorer Sport Trac er bróðir mest selda jeppa í Ameríku síðastliðin 14 ár, Ford Explorer. Sport Trac er einungis pallútgáfa þessa vinsæla jeppa, sniðugt fyrir þá sem þurfa mikið farangursrými, eða flytja hluti sem annars hefðu þurft að fara á kerru. Veldu Ford Explorer Sport Trac.
Hljóðlátur og þægilegur akstur
Ford Explorer Sport Trac er meira en 31% hljóðlátari á malarvegum og yfir 26% hljóðlátari á grófari vegum, miðað við eldri módel af bílnum. Í nýja Explorer Sport Trac eru notuð betri efni til hljóðeinangrunar og vindurinn flæðir betur um hliðarspeglana. Endurhannaður fjöðrunar- og stýrisbúnaðurinn tryggir betri aksturseiginleika, það má segja að nýr Explorer Sport Trac faðmi götuna.
Að innanverðu hefur allt verið endurhugsað og endurhannað. Lögun sætanna, virkni þeirra og þægindi. Þú munt elska útlínur þeirra og hversu auðvelt það er að koma sætinu fyrir í réttu stillingunni. Mælaborðið hefur fengið nýtt yfirbragð, ný efni, áferð og fallegri mælar auka á akstursánægju og vellíðan.
Öryggi og góð aksturshæfni
Nýr Ford Explorer SportTrac er með mikin öryggisbúnað sem staðalbúnað. Raunar er hann hannaður til að mæta öllum þeim kröfum sem bandarísk yfirvöld gera vegna óhappa sem bifreiðin gæti lent í. Staðalbúnaður í Explorer SportTrac, er AdvanceTrac með RSC (roll stability control) en það er rafstýrt jafnvægiskerfi sem samanstendur af 4 aðal þáttum: ABS hemlum, stöðugleikakerfi, gripstýringu og veltivörn. Þetta kerfi aðstoðar ökumann við að stýra bifreiðinni við krefjandi aðstæður.
Það þarf aðeins að ýta á einn takka til að breyta Explorer úr 4x4 AUTO, sem jafnan er ekið í við hefðbundnar aðstæður, í 4x4 LOW og þá er Explorer SportTrac tilbúin fyrir ófærð og krefjandi aðstæður. Þú notar 4x4 HIGH, ef þú þarft á auknu veggripi að halda, til dæmis í hálku eða snjó. Ford Explorer SportTrac 4x4 hefur það sem þarf, til að flytja þig þangað sem þú vilt fara.
Ford Explorer SportTrac með Sync
Með því að velja Ford Explorer SportTrac Limited getur þú valið háþróaða raddstýrða samskiptakerfið Sync frá Microsoft með bílnum. Með Sync getur þú stjórnað stafræna tónlistarspilaranum og blátannarsímanum (Bluetooth) með röddinni í stað þess að teygja þig í stjórntakkana. Kynntu þér málið nánar undir Ítarefni hér fyrir neðan.