Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Kuga • Um Kuga 

18. maí 2012

Skoða PDF: Ford Kuga bæklingur

Þúsundþjalasmiðurinn – Ford Kuga

Ford Kuga er svarið sem margir hafa leitað að. Ford Kuga er bíllinn sem sameinar það besta úr tveimur heimum, annarsvegar heimi daglega lífsins með rúntinum í skólann með börnin, túrnum í og úr vinnu, skylduferðinni í matvöruverslunina og hinsvegar heimi frítímans, með veiðiferðunum, skíðaferðunum, útilegunum – öllu því skemmtilegasta.

Kuga er skrefi framar

Til að sinna sínu hlutverki býr nýr Ford Kuga yfir æði sérstakri hönnun. Ford Kuga er eitthvað alveg nýtt í heimi litlausra jepplinga því Kuga er ferskur vindur breytinga, bíllinn sem mun setja nýja staðla. Ford Kuga verður því ekki aðeins einstakur í augum eigandans heldur einfaldlega einstakur... í augum allra.

Ford Kuga er einstakur frumkvöðull vegna þess að hann býður aksturseiginleika fólksbíls, háa akstursstöðu hefðbundins jepplings og öryggi fjórhjóladrifsins í bland við hina sérstöku kviku hönnun Ford sem túlkar útlitslega sportlega eiginleika bílsins.

Kvikur, lipur, fótviss, fjörugur, framúrskarandi. Ford Kuga er sannkallaður orkubolti og það skín í gegn í kvikri hönnun bílsins. Þetta er það sem Ford Kuga snýst um, að sameina frábæra aksturseiginleika hagnýtu notagildi, svo hægt sé að fá meira út úr lífinu.

Gefðu ímyndunaraflinu lausan taum

Prófaðu að upplifa veginn frá sjónarhóli Ford Kuga. Sjáðu tækifæri en ekki hindranir. Tæknileg hönnun bílsins sér til þess að hver ferð verður eins ánægjuleg og spennandi og kostur er. Ford Kuga býr yfir góðu vopnabúri til að láta drauma þína rætast. Ef þú kannt að meta ræsihnapp, lyklalaust aðgengi, tvöfaldan afturhlera og ofnæmisprófað innanrými, þá kanntu örugglega að meta það að Ford Kuga hefur líka hlotið fimm stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP. Ford Kuga býr yfir sex líknarbelgjum, stöðugleikastýringu, spólvörn og ýmsum virkum og óvirkum öryggisbúnaði sem tryggir öryggi farþega eins og framast er unnt.

Farðu þína eigin leið

Að lifa lífinu lifandi er að gera sér grein fyrir því að hægt er að stjórna eigin lífi að miklu leiti. Val á námi, uppeldi barnanna, starfsframi og almenn velgengni er ekki nokkuð sem fellur af himnum ofan. Það að vita hvað maður vill er grundvallaratriði. Ford Kuga er fyrir þá sem hafa kveikt á leiðarljósi meðvitundarinnar. Bíll fyrir þá sem fara sínar eigin leiðir. Bíll fyrir þá sem vita hvað þeir vilja.

Snilldin við Ford Kuga felst í því að tekist hefur að halda í mikilvægustu eiginleika fólksbíls og jepplings. Veghæð Ford Kuga er 188 millimetrar en þrátt fyrir það býður Ford Kuga framúrskarandi aksturseiginleika sem eru sambærilegir á við það sem bestu fólksbílar bjóða. Ford Kuga mun líka ráða við flest það sem að honum er beint. 21 gráðu áfallshorn að framan og 25 gráðu að aftan ásamt fullkomnu fjórhjóladrifi sjá til þess að Ford Kuga er ekkert að vanbúnaði að takast á við krefjandi aðstæður.

Afköst með hagkvæmni

Ford Kuga er líka framúrskarandi í eldsneytissparnaði og losun koldíoxíðs. Ford Kuga losar aðeins 159 g/km af koldíoxíði og eyðir aðeins 6 lítrum af eldsneyti fyrir hverja hundrað kílómetra í blönduðum akstri. Þessi árangur næst þrátt fyrir að Ford Kuga sé útbúinn öflugri 140 hestafla tveggja lítra TDCi dísilvél sem skilar 320 Nm af togi. Bíllinn er í flestum tilfellum framhjóladrifinn en þegar mikið liggur við fer allt að 50% aflsins til afturhjólanna.

Fyrir þá aflþyrstu fæst Ford Kuga einnig með 2,5 lítra Duratec bensínvél sem skilar 200 hestöflum en bæði dísil- og bensínvélin henta sérlega vel með tæknivæddri PowerShift sjálfskiptingu Ford. PowerShift nýtur góðs af tveimur kúplingum þar sem önnur sér um gíra 1,3,5 og bakkgír, en hin sér um 2, 4, og 6 gír. Með þessu móti næst að sameina kosti beinskiptingar og sjálfskiptingar í einni skiptingu sem dregur þannig úr eldsneytiseyðslu, minnkar útblástur en skilar þó betri aflnýtingu og afköstum.

Ford PowerShift fékkst fyrst með 2,0 TDCi dísilvél Ford árið 2008 og varð hún strax vinsæll kostur. Sjálfskiptingin er afar hentug fyrir Ford Kuga því á meðal ótvíræðra kosta hennar eru skriðstilling sem gagnast vel við erfiðar aðstæður og vélarbremsun eins og á hefðbundnum gírkassa sem stuðlar að minna sliti á bremsum og dregur úr eldsneytiseyðslu. Þá er gírkassinn tengdur ABS bremsukerfinu sem þýðir að við neyðarhemlun er gírkassinn snarlega aftengdur til að tryggja sem besta hemlun og að lokum er skiptingin skynvædd þannig að hún skiptir t.d. ekki um gír í miðri beygju eða þegar hjól missir grip.

Rúm fyrir þægindi

Ford Kuga er líka sérlega rúmgóður. Að innan er yfirdrifið geymslurými og sérstaklega stórt hanskahólf, nokkuð sem er orðið fremur sjaldgæft í nútímabílum. Það er þó farangursrými bílsins sem er einna nýstárlegast. Farangursrými bílsins rúmar 410 lítra og 1405 lítra ef aftursætin eru lögð niður. Aðgangurinn að farangursgeymslu bílsins er tvöfaldur. Hægt er að opna efri hluta hurðarinnar sérstaklega eða allt farangursrýmið í einu, allt eftir hvað hentar fjölskyldunni hverju sinni.

Hönnun innanrýmisins er einnig sérstök í Ford Kuga. Mikil áhersla hefur verið lögð á notagildi bílsins og því býr Ford Kuga yfir mörgum hentugum geymsluhólfum sem eru staðsett hér og þar um bílinn. Það er líka hugað að umhverfi ökumanns, armpúði, sjálfdimmandi baksýnisspegill og miðjustokkur með öllum helstu stjórntækjum er allt innan seilingar.

Með Bluetooth tækni er einnig hægt að raddstýra mörgum aðgerðum í bílnum eins og að svara í símann þráðlaust, skipta um útvarpsstöð eða lag á geisladisknum. Það er líka hægt að stýra leiðsögukerfi bílsins og miðstöð hans með röddinni eins og vera ber í bíl 21. aldarinnar.

Fáir bílar sameina því eins marga góða kosti og Ford Kuga.

Tækni fyrir þig

Þá er ótalin ýmis konar búnaður sem er ætlaður til þæginda. Íslenskir viðskiptavinir Ford hafa fyrir löngu síðan lært að meta þægilegan aukabúnað eins og upphitanlega framrúðu sem þykir mikill lúxus á köldum vetrarmorgnum. Að sumri til skiptir ekki síður miklu máli að halda hitanum úti. Ford leysir það vandamál með sérstakri sólarvörn í framrúðu sem stuðlar að mun lægra hitastigi í bílnum en ef um væri að ræða hefðbundið rúðugler.

Þá er Ford Kuga að sjálfssögðu útbúinn MP3 og USB tengimöguleikum og þeir sem kunna að meta nýjustu tækni verða afar ánægðir með 230 volta tengið sem tryggir stöðugan straum til fartölvunnar, stafrænu myndavélarinnar, símans eða tónhlöðunnar sem fæstir vilja vera án í ferðalögum nútímans.

Búnaður sem yfirleitt finnst ekki nema í mun dýrari bílum er einnig fáanlegur í Ford Kuga. Þar má einna helst nefna bakkmyndavél sem sýnir svæðið fyrir aftan bílinn í skjánum fyrir leiðsögutækið. Tvöfalt miðstöðvarkerfi er einnig afar þægilegt því þannig geta bílstjóri og farþegi valið það hitastig sem hentar hverju sinni, óháð hvor öðrum.

Vertu skrefi framar!

Hvort sem þú leitar að bíl fyrir daglega rúntinn í vinnuna með snatti í bland eða hinum fullkomna ferðalagabíl sem klárar skíðaferðir á veturna og ævintýraferðir á sumrin þá má segja að Ford Kuga geti leyst þinn vanda. Með Ford Kuga ertu með tromp á hendi. Ford Kuga er einskonar þúsundþjalasmiður og með honum verður þú skrefi á undan.

Vertu í hópi þeirra bestu. Veldu Ford.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli