Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford fréttir  Prenta þessa síðu

07. febrúar 2012

Explorer fréttir

Ford | fös. 12. ágú. 2011
Fyrstu nýju Ford Explorer bílarnir komnir til landsins
Brimborg pantaði fyrstu Ford Explorer bílana til landsins fyrir nokkru síðan en vegna gríðarlegrar eftirspurnar vestanhafs hefur Ford ekki getað afhent bíla eins og upphaflega stóð til. Nýi Ford Explorer sportjeppinn var fyrr á árinu valinn bestur í flokki jeppa/trukka á NAIAS (North American International Auto show) í Detroit og má segja að algjör endurhönnun Ford á þessum vinsæla bíl hafi því tekist afar vel. Þetta er þriðja árið í röð, og sjöunda skiptið í allt, sem Ford hlýtur heiðurinn í þessum flokki og er afar ánægjulegt að sjá Ford Explorer skjóta keppinautum sínum ref fyrir rass með þessum hætti. Meira »
Ford | þri. 18. jan. 2011
Nýr Ford Explorer valinn jeppi ársins á bílasýningunni í Detroit
Tilkynnt var í vikunni að nýr Ford Explorer þætti bestur í flokki jeppa/trukka á NAIAS (North American International Auto show) í Detroit. Þetta er þriðja árið í röð, og sjöunda skiptið í allt, sem Ford hlýtur heiðurinn í þessum flokki, en bæði er valinn fólksbíll ársins og jeppi ársins(truck of the year). Sigurvegararnir eru valdir af 49 bílablaðamönnum frá Bandaríkjunum og Kanada. Meira »
Ford | fim. 13. jan. 2011
Alnýr Ford Explorer segir GO - DO með Jónsa
Jónsi, úr Sigurrós, hefur nýlokið gríðarlega vel heppnaðir tónleikaferð sinni um heiminn en 99. tónleikarnir voru haldnir í Laugardalshöllinni þann 27. desember. Jónsi hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda um allan heim. Tónlistarmenn í fremstu röð veittu honum liðsinni og tónleikarnir sjálfir þóttu hreint og beint listaverk. Að mati Ford er lagið Go Do með Jónsa því tilvalið til að kynna hinn glænýja Ford Explorer sem brátt kemur á markað á Íslandi. Raunar hefur fyrsti bíllinn þegar verið seldur. Meira »
Ford | þri. 10. ágú. 2010
Nýi Ford Explorer er að mestu endurvinnanlegur
Ford bílaframleiðandinn gengur lengra en áður í vistvænni bílaframleiðslu með nýja Ford Explorer sem frumsýndur var á dögunum. Áttatíu og fimm prósent bílsins eru úr endurvinnanlegum efnum. Sætin eru fyllt með lífrænni kvoðu og innréttingarnar eru að hluta úr endurunnum efnum. Þá er hluti stálsins endurunnið. Meira »
Ford | mán. 26. júl. 2010
Stórglæsilegur Ford Explorer afhjúpaður á Facebook
Ford hefur undanfarnar vikur útdeilt myndum þar sem einstakir hlutar hins nýja Ford Explorer hafa verið sýndir, þó aldrei hafi verið sýnt nóg til að gera sér fullkomlega grein fyrir því hvernig nýi bíllinn myndi líta út. Ástæða þessa er sú að Ford gjörsamlega endurhannaði bílinn út frá breyttum aðstæðum á markaði og niðurstaðan er sú að gjörbreyttur Ford Explorer var opinberaður í dag, á Facebook og loksins sjást myndir af bílnum í heild sinni. Nýr Ford Explorer stendur undir hörðustu kröfunum því hann er tæknilegt þrekvirki, 7 manna, búinn sjálfberandi yfirbyggingu, og um 30% sparneytnari en forverinn. Meira »
Ford | mið. 8. apr. 2009
Rafknúinn Ford Explorer 4x4 FCV kynntur í Brimborg
Brimborg og Ford afhentu í gær Íslenskri NýOrku Ford Explorer 4x4 FCV rafvetnisjeppa sem verður í tilraunaakstri á landinu til loka næsta árs. Meira »
Ford | fös. 18. jan. 2008
Ford Explorer America afhjúpaður
Ford Explorer America er hugmyndabíll sem kynntur var á bílasýningunni í Detroit á dögunum. Í bílnum er hin nýja og vistmildari vél frá Ford Motor Company, EcoBoost, sem bæði eyðir og mengar minna en hefðbundnar vélar. Tæknin styðst m.a. við úðun eldsneytisins undir háþrýstingi inn í brunahólf vélarinnar og næst þannig um 20% betri eldsneytisnýting og 15% minni útblástursmengun. Að auki hefur nýja tæknin í för með sér aukin vélarafköst.Meira »
Ford | fim. 31. ágú. 2006
Nýr Ford Explorer Sport Trac frumsýndur
Brimborg frumsýnir á morgun, föstudag, nýjan og breyttan pallbíl; Ford Explorer Sport Trac...Meira »
Ford | fös. 27. jan. 2006
Gjörbreyttur Ford Explorer frumsýndur
Komdu og skoðaðu stórglæsilegan Ford Explorer, hlaðinn nýjungum. Opið laugardag og sunnudag.Meira »
Ford | mið. 18. jan. 2006
Nýr og endurhannaður Ford Explorer
Brimborg kynnir um næstu helgi nýjan og gjörbreyttan Ford Explorer. Óhætt er að segja að hér sé...Meira »
Allar Ford fréttir »

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli