Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford fréttir  Prenta þessa síðu

07. febrúar 2012

Fiesta fréttir

Ford | þri. 13. sep. 2011
Ford Fiesta fer niður í 3,3 lítra á hundraðið og 87 grömm í losun á CO2
Ford setur ný viðmið í sparneytni með nýjustu Ford Fiesta og Ford Focus ECOnetic bílunum en Ford Fiesta er komin með eldsneytisnotkunina niður í 3,3 lítra á hundraðið og CO2 losunina í aðeins 87 grömm sem er jafn lítið og í þekktustu tvinnbílunum. Eldsneytisnotkunin er þó lægri en í tvinnbíl en öll þægindi nútíma bíls eru til staðar með hefðbundinni rekstrarhagkvæmni og áreiðanleika. Með Ford Fiesta og Ford Focus er hægt að fá visthæfni hefðbundins tvinnbíls í búningi þrautreyndrar tækni. Meira »
Ford | fim. 11. ágú. 2011
Öflugri Ford Fiesta fáanlegur með 134 hestafla vél
Ford Fiesta Sport Street Edition er nýjasta útgáfan af hinum vinsæla fólksbíl sem farið hefur sigurför um bæði Evrópu og Bandaríkin. Hinn sportlegi Fiesta er allur mun beittari en hóflegri útgáfur bílsins, enda um öflugan bíl að ræða hvernig sem á hann er litið. Kraftalegur að sjá er Ford Fiesta Sport Street Edition sjaldgæft augnakonfekt í þessum flokki bíla. Svarti liturinn fer bílnum einstaklega vel, glæsilegar álfelgurnar og vindskeiðar allan hringinn setja svo punktinn yfir i-ið. Þetta er bíll sem fólk tekur svo sannarlega eftir. Meira »
Ford | fim. 7. júl. 2011
Ken Block mætti með Ford Fiesta á Goodwood Festival of Speed
Ken Block er enginn venjulegur rallkappi. Hann hefur slegið í gegn sem mikill sýningarmaður og rallkappi og njóta myndbönd sem hann setur inn á Youtube mikilla vinsælda. Það er heldur ekki undarlegt að myndböndin séu vinsæl því Ken Block útfærir ýmiskonar áhættuatriði á 600 hestafla Ford Fiesta rallbíl. Nú fengu gestir á hátíð hraðans í Goodwood Bretlandi einnig að njóta hæfileika Blocks og afkasta Ford Fiesta um síðustu helgi.Meira »
Ford | þri. 31. ágú. 2010
Nýr Ford Fiesta hlýtur verðlaun fyrir öryggi
Nýi Ford Fiesta var nýlega valinn öruggasti kosturinn í flokki smábíla hjá Bandarísku umferðaröryggisstofnuninni, IIHS (Insurance Institute for Highway Safety). 2011 árgerðin af Ford Fiesta er fyrsti smábíllinn til að standast allar kröfur stofnunarinnar eftir að byrjað var að álagsprófa þök bílanna við veltur. Meira »
Ford | fös. 6. ágú. 2010
Autoblog segir nýja Ford Fiesta almenningsvæðingu gæða og gleði
Ford Fiesta er fyrsti smábíllinn frá Evrópu sem kemur á bandarískan markað í evrópskum búningi og hefur Ford tekið með bílnum nokkuð stórt veðmál. Ford hefur veðjað á að Bandaríkjamenn séu nú loksins tilbúnir fyrir vel útbúinn, hágæða smábíl í takt við þá sem evrópskir bílabræður þeirra hafa fyrir löngu síðan tekið ástfóstri við. Bílnum hefur verið afar vel tekið og langir biðlistar hafa myndast. Það sem meira er þrátt fyrir að lúxusútgáfa bílsins sé örlítið dýrari en þeir smábílar sem Bandaríkjamenn eiga að venjast er hún talin fullkomlega peninganna virði. Þetta er niðurstaða veftímaritsins Autoblog í nýlegum reynsluakstri. Meira »
Brimborg | fös. 6. ágú. 2010
Autoblog segir nýja Ford Fiesta almenningsvæðingu gæða og gleði
Ford Fiesta er fyrsti smábíllinn frá Evrópu sem kemur á bandarískan markað í evrópskum búningi og hefur Ford tekið með bílnum nokkuð stórt veðmál. Ford hefur veðjað á að Bandaríkjamenn séu nú loksins tilbúnir fyrir vel útbúinn, hágæða smábíl í takt við þá sem evrópskir bílabræður þeirra hafa fyrir löngu síðan tekið ástfóstri við. Bílnum hefur verið afar vel tekið og langir biðlistar hafa myndast. Það sem meira er þrátt fyrir að lúxusútgáfa bílsins sé örlítið dýrari en þeir smábílar sem Bandaríkjamenn eiga að venjast er hún talin fullkomlega peninganna virði. Þetta er niðurstaða veftímaritsins Autoblog í nýlegum reynsluakstri. Meira »
Ford | mið. 16. jún. 2010
Ford Fiesta er enn bestur að mati Diesel Car tímaritsins
Ford Fiesta var nýlega valinn besti smábíllinn við val á bíl ársins 2010 hjá Diesel Car tímaritinu annað árið í röð. Verðlaunin koma í kjölfar þess að Ford Fiesta hefur verið endurnýjaður til að styrkja sess hans í fyrsta sæti yfir mest seldu bíla í Bretlandi. Meira »
Ford | fös. 4. jún. 2010
Persónuleg Fiesta
Í tengslum við útgáfu 2011 árgerðarinnar af Ford Fiesta í Bandaríkjunum, býðst eigendum að sérmerkja bílinn sinn og laga hann að eigin persónuleika. Meira »
Ford | þri. 18. maí 2010
Ford Fiesta tekst á við Lamborghini
Bandaríkjamenn hafa löngum haldið frelsisgildum á lofti þó alvöru frelsis unnandi menn geri sér grein fyrir því að það sé þunn lína á milli frelsis og helsis. Síðastliðin ár hefur því einmitt verið haldið fram að Bandaríkjamenn hafi verið orðnir fastir í viðjum of stórra og eyðslufrekra bíla. Með nýjum Ford Fiesta eru breytingar framundan og til að sýna það hefur Ford Fiesta verið stillt upp á móti Lamborghini Gallardo.Meira »
Ford | fös. 14. maí 2010
Ameríkuferð á Ford Fiesta 2.0?
Bandaríkjamenn hafa tekið Ford Fiesta opnum örmum enda er Ford Fiesta einmitt bíllinn sem vantað hefur í Bandaríkjunum um árabil, nettur bíll sem hefur allan þann lúxus sem fólk getur helst óskað sér en er líka sparneytinn og hagkvæmur í rekstri. Ford Fiesta er líka einn af sárafáum svokölluðum Evrópubílum sem hafa verið fluttir inn óbreyttir til Bandaríkjanna. Hugarfarsbreyting virðist vera að eiga sér stað þar sem margir flýja bensínhákana og velja sér minni og sparneytnari bíla. En fólk vill fá meira og eitt af því sem skal prýða nútíma borgarbíl er nútímatækni eins og vefsamband. Um þessar mundir er því verið að prófa Ford Fiesta bíla sem kalla mætti Ford Fiesta 2.0 og er þá ekki verið að vísa í vélarstærðina, heldur tengimöguleika bílsins og vinnsluhæfileika á veraldarvefnum. Meira »
Ford | fös. 26. feb. 2010
Ken Block sýnir snilldartakta á Ford Fiesta rallýbílnum
Honum leiðist víst auðveldlega og gæti það verið möguleg skýring á því af hverju Ken Block útfærir brjálæðisleg áhættuatriði á rallýbílum sínum. Hann vílar ekki fyrir sér að aka í gegnum hindrunarbrautir, stökkva á risastökkpöllum eða aka niður skíðabrekkur ef sá gállinn er á honum. Og nú er hann kominn á nýjan og afar öflugan rallýbíl – Monster Energy Ford Fiesta – sem hann ætlar að nota til að vinna rallý um helgina. Meira »
Ford | mán. 1. feb. 2010
Ford Fiesta fær flotta einkunn hjá Top Gear
Þeir geta verið harðir í horn að taka hjá Top Gear enda liggja þeir ekkert á skoðunum sínum þegar lélegir eða leiðinlegir bílar eru annarsvegar. Ford Fiesta er hinsvegar hvorki lélegur né leiðinlegur eins og sannast á umsögn Top Gear um bílinn en þar segir að Fiesta sé dæmigerður bíll sem „fólk kaupi handa dætrum sínum, en stelist svo í bíltúr á bílnum þegar dæturnar eru ekki heima“. Meira »
Ford | fim. 6. ágú. 2009
Ford Fiesta kjörinn bíll ársins 2009
Bílatímaritið Auto Express hefur krýnt Ford Fiesta bíl ársins 2009. Þar að auki hlaut...Meira »
Ford | þri. 2. jún. 2009
Ford Transit og Fiesta Í ECOnetic útgáfum
Ford hefur tilkynnt að Transit og Fiesta ECOnetic sendibílar komi á markað síðar á árinu. Meira »
Ford | þri. 5. maí 2009
Ford Fiesta hlýtur verðlaun fyrir hönnun
Fiesta þótti fremstur í hópi þúsunda tilnefninga Meira »
Ford | fim. 5. mar. 2009
Ford Ka og Ford Fiesta sækja á
Lítil undur: Nýir Ford mæta kröfum viðskiptavina á þrengingatímum Meira »
Ford | fim. 19. feb. 2009
Ford Fiesta söluhæstur í Bretlandi
Sala Fiesta eykst í samdrættinum. Ford bílar söluhæstir í sínum flokki. Meira »
Ford | mið. 28. jan. 2009
Ford Fiesta bætir enn í verðlaunaskápinn
Það er ekki ofsögum sagt að Ford Fiesta hafi fallið í góðan jarðveg hjá gagnrýnendum. Nú hefur breska bílablaðið What Car? útnefnt Ford Fiesta 1.25i Zetec sem bíl ársins í Bretlandi. Meira »
Ford | fös. 23. jan. 2009
Fullt hús stiga fyrir Fiesta
Bílablaðið Auto Express hefur kveðið upp dóm sinn varðandi 2009 árgerð Ford Fiesta. Fulltrúar blaðsins hrifust mjög af Fiesta og gáfu honum fullt hús stiga, fimm stjörnur. Meira »
Ford | mán. 5. jan. 2009
Ford Fiesta bíll ársins hjá The Sun
Ford Fiesta öðlaðist sá heiður við lok síðasta árs að verða valinn bíll ársins að mati breska dagblaðsins The Sun.Meira »
Citroën | fim. 20. nóv. 2008
Fiesta tapaði með minnsta mögulega mun
Ford Fiesta hafnaði í öðru sæti í valinu á Bíl ársins í Evrópu en Vauxhall Insignia stóð uppi sem sigurvegari og hampaði því hinum eftirsótta titli. Einungis munaði einu stigi á Fiesta og Insignia.Meira »
Ford | fös. 24. okt. 2008
Ford Fiesta Ástarsmiðjan vekur lukku í Köln
Íbúar Kölnar í Þýskalandi urðu fyrir skemmtilegri upplifun á dögunum þegar þeim varð litið út um gluggann og sáu að búið var að dressa upp Ford verksmiðjuna í litrík klæði, á einni nóttu. Meira »
Ford | fim. 24. júl. 2008
Fiesta ECOnetic er nýjasti leiðtoginn frá Ford
Á alþjóðlegu bílasýningunni í London sem nú stendur yfir, verður nýr Ford Fiesta ECOnetic, heimsfrumsýndur. Bíllinn er sá visthæfasti sem Ford hefur sent frá sér hingað til og leiðandi í sínum flokki. Meira »
Ford | fim. 26. jún. 2008
Ford Fiesta framleiddur fyrir Bandaríkjamarkað árið 2010
Forsvarsmenn Ford í Norður Ameríku tilkynntu á dögunum að nýja Ford Fiesta, einn vinsælasti smábíllinn í Evrópu, yrði framleiddur í Mexico fyrir Bandaríkjamarkað og kæmi til sölu snemma árs 2010. Meira »
Ford | þri. 11. mar. 2008
Nýr og glæsilegur Fiesta í Genf
Meðal þeirra bíla sem Ford kynnti á bílasýningunni í Genf var hinn nýi og endurhannaði Ford Fiesta, sem nú þegar er fullyrt að verði einn söluhæsti bíllinn á breska markaðnum á næsta ári. Nýr Fiesta kemur til Brimborgar í byrjun næsta árs.Meira »
Ford | fös. 10. ágú. 2007
Bílaverksmiðja Ford í Cologne: Tvær milljónir Ford Fiesta- og Fusion
Tímamót urðu í bílaverksmiðju Ford í Cologne nú í byrjun ágúst þegar tvær milljónir Ford-bifreiða höfðu verið framleiddar þar...Meira »
Ford | mán. 25. sep. 2006
Ford Fiesta 30 ára
Ford Fiesta fagnar um þessar mundir 30 ára afmæli sínu en fyrsti Fiesta bíllinn kom af færibandinu í Valencia á Spáni árið 1976...Meira »
Ford | fim. 1. des. 2005
Nýr og breyttur Ford Fiesta á lægra verði
Við kynnum með stolti nýjan og glæsilegan Ford Fiesta, nú á enn betra verði. Kíktu á fyrstu myndirnar.Meira »
Ford | mán. 28. nóv. 2005
Nýr og breyttur Ford Fiesta væntanlegur í desember
Óhætt er að segja að breytingin á nýjum Ford Fiesta hafi tekist sérlega vel í alla staði, bæði að innan sem utan.Meira »
Ford | mið. 1. jún. 2005
Ford Fiesta ST150 kominn til landsins
Fiesta ST150 er með 2ja lítra vél sem er hvorki meira né minna en 150 hestöfl...Meira »
Allar Ford fréttir »

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli