Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford fréttir  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012

Focus fréttir

Ford | þri. 10. jan. 2012
Glæsilegur Ford Focus Electric á markað 2012
Árið 2012 hefst framleiðsla á rafbílnum Ford Focus Electric sem verður fyrsti rafknúni 5 manna fólksbíllinn með eldsneytisnotkun sem samsvarar 2,35 l/100 km. Annar frábær eiginleiki bílsins er hve skamman tíma það tekur að hlaða bílinn og er hann því fullhlaðinn á mun styttri tíma en sambærilegir bílar í hans flokki sem kemur sér mjög vel í annríki dagsins. Meira »
Ford | mið. 28. des. 2011
Ford Focus ST-R er draumur ökuþórsins
Ford hefur nýverið birt myndband af Ford Focus ST-R kappakstursbílnum sem nú er hægt að panta. Hann er útbúinn öllum þeim eiginleikum sem nauðsynlegir eru til að geta tekið þátt í kappakstursmótaröðum á borð við Grand-Am ST class og SCCA World Challange TC. Kappakstursbíllinn notast við EcoBoost 2,0 lítra fjögurra strokka vél og og er með sex þrepa beinskiptingu og hefur vélin verið stillt þannig að hún gefur aukinn kraft þótt það sé á kostnað eldsneytisnotkunar. Meira »
Ford | mán. 19. des. 2011
Ford Focus kominn í úrslit sem Bíll ársins í Bandaríkjunum 2012
Ford Focus er meðal þriggja bílategunda sem komnar eru í úrslit sem Bíll ársins í Bandaríkjunum 2012 í flokki fólksbíla. Hinar tegundirnar eru Hyundai Elantra og Volkswagen Passat. Þetta var tilkynnt á hádegisverðarfundi Samtaka bílablaðamanna í Detroit á dögunum. Verðlaunin hafa þá sérstöðu að dómnefndin samanstendur af fjölskipuðum hópi blaðamanna frá Bandaríkjunum og Kanada sem starfa á ljósvakamiðlum, prent- og netmiðlum í stað þess að vera fulltrúar eins fjölmiðils líkt og verið hefur fram að þessu. Meira »
Ford | þri. 1. nóv. 2011
Ford Focus með fullt hús í öryggisprófunum
Euro NCAP eru óháð evrópsk samtök sem annast prófanir á öryggi bifreiða. Þegar nýir bílar eru settir á markað eru þeir látnir gangast undir strangar öryggisprófanirnar sem líkja eftir algengum umferðaróhöppum. Þeir bílar sem uppfylla ströngustu öryggisstaðla geta mest fengið fimm stjörnur úr þessum prófunum og slíka viðurkenningu hlotnaðist Ford Focus nýverið. Einn mikilvægasti liður í árekstrarprófinu lýtur að öryggi barna í þeim tilvikum þar sem líkt er eftir árekstri inn í hlið bifreiðar og framan á hana. Meira »
Ford | þri. 25. okt. 2011
Dyravörður Ford Focus dílar við dældirnar
Margar kannast við það hve pirrandi það getur verið að aka um miðbæinn í stórborgum Evrópu. Göturnar eru þröngar, bílum er lagt þéttingsfast hver upp við annan og plássleysið almennt mikið. Því þarf oft að leggja bílum við erfiðar aðstæður þar sem allt of algengt er að bifreiðaeigendur verði fyrir örlitlu hnaski og bílhurðir rispist eða dældist. Óhöpp af þessu tagi eru þó síður en svo bundin við stórborgir Evrópu. Hver kannast ekki við að hafa tekið eftir rispu eða dæld á bílhurðinni hjá sér eftir verslunarleiðangur í Kringlunni eða Smáralind? Nú hefur Ford hannað útbúnað sem kemur í veg fyrir slík óhöpp. Meira »
Ford | þri. 31. maí 2011
Ford Focus getraun
Nú hefur verið dregið í Ford Focus getrauninni sem hefur staðið yfir undanfarnar vikurnar samhliða kynningu á þessum glæsilega bíl. Þátttakendur voru...Meira »
Ford | fös. 27. maí 2011
Sögulegur árangur Ford Focus í Euro NCAP
Fyrsti heimsbíll Ford, Ford Focus sem frumsýndur var á landinu fyrir skömmu, er enn og aftur í fréttum. Í þetta skiptið er það sögulegur árangur bílsins í árekstrarprófunum Euro NCAP þegar Ford Focus fékk fyrstur bíla í sínum flokki, sérstaka öryggisviðurkenningu sem aðeins lúxusbílar hafa fengið fram að þessu.Meira »
Ford | fös. 6. maí 2011
Nýr Ford Focus les umferðarskilti, frumsýndur á morgun!
Frumsýning Brimborgar á fyrsta heimsbíl Ford er að skella á. Bíllinn verður frumsýndur á morgun, laugardag að Bíldshöfða 6 á milli kl. 12 og 16. Ford Focus er fyrsti heimsbíll Ford, drekkhlaðin nýjum búnaði. Heimsbíllinn Ford Focus getur meðal annars lesið á umferðarskilti og látið ökumann vita af hraðatakmörkunum og öðrum skilaboðum. Meira »
Ford | fim. 5. maí 2011
Brimborg sýnir hvernig nýr Ford Focus leggur í stæði á frumsýningu á laugardag
Brimborg sýnir á laugardaginn á milli kl. 12 og 16 að Bíldshöfða 6 nýjan Ford Focus, fyrsta alheimsbíl Ford. Nokkrar gerðir bílsins verða til sýnis og mun gestum meðal annars gefast kostur á að prófa bílastæðaaðstoð Ford Focus í sérstöku ökugerði sem verður komið upp við sýningarsal Ford. Þar verður einn forvitnilegasti tæknibúnaður Ford Focus sýndur en Ford Focus getur til að mynda bakkað sjálfur í bílastæði sem margir myndu veigra sér við að leggja í. Meira »
Ford | fös. 29. apr. 2011
Frumsýning á glænýjum Ford Focus 7. maí
Nýjasta kynslóð Ford Focus bílsins er komin til landsins og verður bíllinn frumsýndur þann 7. maí. Bíllinn hefur vakið mikla athygli um allan heim enda er um fyrsta alheimsbíl Ford að ræða, bíl sem verður eins á öllum markaðssvæðum en þannig hefur Ford nýtt þróunarfé mun betur. Niðurstaðan er bíll sem mun verða nýtt viðmið í sínum flokki bíla þar sem lúxus, sparneytni og útbúnaður verður ráðandi, á góðu verði. Meira »
Ford | mið. 20. apr. 2011
Fyrsta ferðin á nýjum Ford Focus
Um helgina var nýr Ford Focus afhjúpaður í einskonar forsýningu en bíllinn var leynigestur á hinni árlegu Ford Mustang sýningu. Ford Mustang Sýningin var afar vel sótt og naut Ford Focus bíllinn ekki síður athyglinnar enda hefur bíllinn verið algjörlega endurhannaður og er hann stórglæsilegur að innan sem utan. Meira »
Ford | fös. 27. ágú. 2010
Nýjum hæðum náð í næsta Ford Focus
Næsta kynslóð Ford Focus mun koma fram á sjónarsviðið snemma á næsta ári og verður um að ræða þann Focus sem fengið hefur langmestu þróunina hjá Ford frá upphafi. Undanfarna mánuði hafa prófunareintök farið um allan heim þar sem leitaðar hafa verið uppi erfiðar aðstæður svo reyna megi á bílinn.Meira »
Ford | fim. 25. mar. 2010
Öflugasti lögreglubíll Danmerkur gæti verið Ford Focus RS
Lögreglan í Danmörku hefur í flestum tilfellum í nógu öðru að snúast en að eltast við ökufanta. Það kemur þó fyrir að lögreglan þarf að hafa hendur í hári þeirra og hvað er þá betra til að klófesta þá en öflugur lögreglubíll? Nú er sá möguleiki í það minnsta fyrir hendi að lögreglan hafi réttu tækin í að elta afbrotamenn þar sem danskur innflytjandi Ford hefur látið breyta Ford Focus RS bíl í lögreglubíl. Meira »
Ford | mán. 11. jan. 2010
Nýr alheimsbíll Ford, Ford Focus afhjúpaður í Detroit
Þær eru stórar fréttirnar sem okkur berast frá Bandaríkjunum í dag því þar var í dag afhjúpaður nýr Ford Focus sem er ætlað að vera einskonar alheimsbíll Ford fyrirtækisins í allsherjar sókn næstu ára. Þetta er í fyrsta skiptið síðan Ford Model T var framleiddur sem sami bíll Ford verður framleiddur eins fyrir öll helstu markaðssvæði heimsins, Bandaríkin, Evrópu og Asíu. Meira »
Ford | fös. 27. nóv. 2009
Ford Focus rafbíll (BEV) í tilraunastarfssemi með íbúum Lundúna
Í Hillingdon í London leitar Ford að sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að taka þátt í að prófa nýjan rafbíl Ford, Ford Focus BEV (Battery Electric vehicle – rafhlöðu-rafbíll) en bílnum er ætlað að mæta nýjum kröfum bresku ríkisstjórnarinnar sem gilda fyrir bíla með mjög lágt CO2 gildi. Meira »
Ford | fim. 19. nóv. 2009
Ford Focus RS er "alltof skemmtilegur"
Hvað gerist þegar bílablaðamaður og eiturgrænn Ford Focus RS hittast á kappakstursbraut í Danmörku? Því hefur hinn danski Mick Østergaard komist að og leyfir hann okkur að sjá afraksturinn á youtube.Meira »
Ford | þri. 22. sep. 2009
Raffjölskyldubíllinn Ford Focus BEV
Nýr rafknúinn Ford Focus er væntanlegur á markað þegar á árinu 2011. Frumsýning á frumgerðinni af þessum knáa raffjölskyldubíl stendur nú yfir á Frankfurt bílasýningunni.Meira »
Ford | mán. 21. sep. 2009
Stjörnuleikur á Ford Focus rafbíl
Frumgerð af nýjum Ford Focus rafbíl verður stjörnum prýdd í fyrstu þáttaröðinni af nýjum spjallþætti Jay Leno. Vikulega munu stjörnurnar...Meira »
Ford | fös. 18. sep. 2009
Ford Focus ECOnetic II stelur senunni
Ford Focus Econetic II þykir kennslubókardæmi í visthæfri bílahönnun. Þessi ofursparneytni Ford kom, sá og stal senunni á alþjóðlegu bílasýningunni sem stendur yfir í Frankfurt um þessar mundir. Meira »
Ford | mið. 5. ágú. 2009
Ford Focus og Volvo C30 öruggastir
Ford Focus reyndist öruggasti bíll ársins 2009 í flokki smærri bíla og Volvo C30 í flokki...Meira »
Ford | mán. 6. apr. 2009
Nýi Ford Focus RS rokselst
Nýja tryllitækið frá Ford, Focus RS, er hraðskreiðasti framhjóladrifni fjöldaframleiddi bíllinn. Meira »
Ford | fös. 27. feb. 2009
Nýr Ford Focus RS er aflmikið tryllitæki sem einnig er til daglegrar notkunar
Auto Express segir nýja Ford Focus RS eftirsóknarverðustu nýjungina árið 2009 og jafnframt hraðskreiðasta bílinn á almennum markaði í sögu Ford. Meira »
Ford | fös. 13. feb. 2009
Ford Fusion tvinnbíllinn fær frábæra dóma. Rafknúinn Ford Focus á götuna 2011.
2010 árgerðin af Ford Fusion, sem framleiddur er í Bandaríkjunum, fær afbragðsdóma gagnrýnanda USA Today. Tilkynnt hefur verið að Ford sem alfarið er knúinn rafmagni verði kominn í framleiðslu árið 2011. Meira »
Ford | þri. 3. feb. 2009
Framleiðsla hafin á Ford Focus RS
Fyrsti Ford Focus RS bíllinn hefur runnið út af færibandinu í Saarlouis verksmiðju Ford í Þýskalandi. Um er að ræða sérstakar viðhafnar útgáfur af Ford Focus en hún er væntanleg á Evrópumarkað í mars mánuði...Meira »
Ford | mið. 8. okt. 2008
Bretar áhugasamir um Focus RS
Ford umboðin í Bretlandi hafa vart undan að anna eftirspurn eftir nýjum Ford Focus RS, sem frumsýndur var á bíla- sýningunni í London í júlí sl. Meira »
Ford | fim. 31. júl. 2008
Þægilegur reynsluakstur á nýjum Ford Focus
Þormóður Dagsson hjá Morgunblaðinu, reynsluók á dögunum endurhönnuðum fimm dyra Ford Focus. Hér er úrdráttur úr dómi hans en fyrirsögnum hefur verið breytt.Meira »
Ford | fim. 10. júl. 2008
Ford Focus RS: Goðsögnin snýr aftur
Ford RS merkið, sem fyrir löngu er orðið að goðsögn í bílasögunni, snýr nú aftur á göturnar sem Ford Focus RS. Spennan eftir þessu nýjasta RS módeli hefur stigmagnast undanfarið og nær nú hámarki er frumsýningin nálgast. Ford Focus RS verður frumsýndur 22. júlí næstkomandi, á Alþjóðlegu bresku bílasýningunni 2008. Meira »
Ford | mið. 4. jún. 2008
Skutbíllinn Ford Focus fær toppeinkunn AutoExpress
Simon Lewis, bílagagnrýnandi hjá AutoExpress, prufukeyrði nýlega Ford Focus Títanium Station með tveggja lítra túrbódísilvélinni og varð mjög ánægður. Hann segir að þessi bíll sé algerlega eins og sniðinn að þörfum barnafjölskyldna. Meira »
Ford | mán. 5. maí 2008
Nýr Focus 2008 á fljúgandi ferð
Segir Dan Trent, blaðamaður hjá breska bílaveftímaritinu msn og gefur upplyftingu Ford Focus fullt hús stiga.Meira »
Ford | mán. 14. apr. 2008
Focus er bestur í sínum flokki að mati AutoCar
John McIlroy, blaðamaður á veftímaritinu AutoCar varð yfir sig hrifinn af nýjum Focus, sem hann reynsluók um miðjan febrúar. Heillaðist hann m.a. af nútímalegri innréttingu og margfalt betri hljóðeinangrun. Meira »
Ford | fös. 4. apr. 2008
Brimborg frumsýnir nýjan Ford Focus um helgina
Brimborg frumsýnir formlega vinsælasta fjölskyldubíl Ford nýjan og endurhannaðan Ford Focus á morgun, laugardaginn 05. apríl, milli kl. 12 og 16, og sunnudaginn 06.apríl milli kl. 13-16 bæði í Reykjavík og á Akureyri. Meira »
Ford | mið. 19. mar. 2008
Lyklalausir Focus og Mondeo
Ekki er lengur nauðsynlegt að nota bíllykilinn til að opna eða ræsa Ford Focus og Ford Mondeo. Lyklalaus tækni Ford er nýr valbúnaður, sem gerir að verkum að um leið og togað er í hurðahandfangið aflæsist bíllinn og hið sama á við um ræsingu bílvélarinnar. Nægir að styðja á sérstakan ræsihnapp til að bíllinn fari í gang að því tilskyldu að á sama tíma sé stutt á hemlapetalann. Þessi valbúnaður er nú þegar fáanlegur með Mondeo og verður einnig í boði með nýjum Focus. Meira »
Ford | mið. 5. mar. 2008
Nýr Focus hlýtur glæsilegar móttökur líkt og Mondeo
Allt bendir til að hinn nýi Focus verði jafn sigursæll og nýr Mondeo sem frumsýndur var á síðasta ári. Dan Trent, bílablaðamaður hjá MSN Cars í Bretlandi gaf nýlega nýjum Focus fullt hús stiga; 5 stjörnur af fimm mögulegum. Hann segir að Focus sé undir sömu heillastjörnu og Mondeo og komi til með að gera mikinn usla í samkeppni við keppinauta sína. Nýr Ford Focus verður frumsýndur hjá Brimborg síðar í þessum mánuði.Meira »
Ford | mán. 11. feb. 2008
Þrefaldur sigur Focus í Svíþjóð
Focusbílarnir í sænska rallinu gerðu það gott um helgina og röðuðu sér í þrjú efstu sætin í Svíþjóð. Sigraði Finninn Jari-Matti Latvala á Ford Focus, annar í mark var landi hann, Mikko Hirvonen, einnig á Focus, og þriðji varð Ítalinn Gigi Galli, líka á Ford Focus.Meira »
Ford | fim. 7. feb. 2008
Nýr og endurfæddur Ford Focus
Endurhannaður og hlaðinn tækninýjungum kemur nýr Ford Focus til Brimborgar í næsta mánuði. Focus hefur um árabil verið langvinsælasti fjölskyldubíllinn hjá Ford enda sameinar hann bæði fallega hönnun, hagkvæmt notagildi og góða aksturseiginleika. Focus er eini bíllinn sem valinn hefur verið bíll ársins í bæði Evrópu og Ameríku.Meira »
Ford | fim. 3. jan. 2008
Ford tilkynnir nýjan Focus RS
Ford í Evrópu hefur tilkynnt um framleiðslu á nýjum Focus RS, sem hafin verður sala á árið 2009. Fyrsta myndin hefur verið gerð opinber og gefur hún hugmynd um útlit nýja bílsins. Bíllinn verður byggður á grunni Focus ST. Hönnun og framleiðsluferli nýja sportbílsins verður leidd af Jost Capito, sem einnig var í forsvari Ford við hönnun hins nýja Fiesta ST og Focus ST.Meira »
Ford | fim. 13. des. 2007
Ford Focus station 2,0 TDCi fær 5 stjörnur hjá AutoExpress
Blaðamaður AutoExpress reynsluók nýlega nýjum Focus station með tveggja lítra dísilvélinni og gefur honum góða dóma. Hin nýja hönnun hefur tekist vel að mati blaðamanns og er bíllinn glæsilegri og nýtískulegri en nokkru sinni fyrr. AutoExpress segir hinn nýja Focus station þegar búinn að sanna sig sem einn besti fjölskyldubíllinn á markaðnum.Meira »
Ford | mán. 12. nóv. 2007
Nýr Ford Focus birtist á nýju ári
Loksins fær umheimurinn að sjá útlit þess nýjasta nýja í Ford-línunni: Hinn endurnýjaða Ford Focus sem beðið er með mikilli eftirvætningu. Eins og sjá má er hann mjög vandaður og ef til vill dálítið dramatískur í útliti. Glæsileg framljós og grill eru augljósasta betrumbótin en í raun er helsta breytingin sú að nánast öll yfirbygging bílsins hefur verið endurhönnuð...Meira »
Ford | fim. 23. ágú. 2007
Lið Ford sigraði í finnska rallýinu á Ford Focus RS
BP-Ford rallýliðið vann finnska rallýið (Rally Finland) á Ford Focus RS. Ótrúlegt en satt: Ford Focus vann bæði fyrsta og annað sæti í þessari frumraun sinni...Meira »
Ford | þri. 29. maí 2007
Grönholm og Hirvonen leiddu forystuna á Ford Focus á Ítalíu
BP-Ford World Rally teymið innsiglaði sigur með glæibrag á Ítalíu á dögunum með því að vinna bæði...Meira »
Ford | þri. 22. maí 2007
Ford Focus kominn í lögguna
Brimborg afhenti nýlega embætti ríkislögreglustjóra tvo lögreglubíla af gerðinni Ford Focus. Bílarnir... Meira »
Ford | mán. 2. okt. 2006
Focus sigraði í sínum flokki
Borgar Ólafsson og Jón Bjarni Hrólfsson unnu sinn flokk í Íslandsmótinu í ralli sem lauk um helgina og skipa þeir...Meira »
Ford | fös. 21. júl. 2006
Ford Focus ST er besti og flottasti hlaðbakurinn
Ford Focus ST vann hatchback-flokkinn hjá Auto Express og dyra Focus annað sæti í flokki lítilla fjölskyldubíla...Meira »
Ford | fös. 14. júl. 2006
Sigurganga Ford Focus heldur áfram í rallinu
Fjórða umferð Pirelli rallsins lauk um síðustu helgi og hélt glæsileg sigurganga þeirra Jóns Bjarna og Borgars á Ford Focus áfram.Meira »
Ford | þri. 20. jún. 2006
Focus í 1. og 3. sæti í Acropolisrallinu
Acropolisrallið svokallaða í Grikklandi er talið mest krefjandi rallið í heiminum...Meira »
Ford | þri. 13. jún. 2006
Sigurganga Focus heldur áfram
Um nýliðna helgi lauk þriðju umferð Pirelli rallsins með sigri Jóns Bjarna Hrólfssonar...Meira »
Ford | mið. 24. maí 2006
Focus vann aftur
Annarri umferð á rallvertíð LÍA á árinu er lokið og vann Ford Focus aftur í sínum...Meira »
Ford | þri. 7. mar. 2006
Stundin er runnin upp, Focus ST er kominn í sýningarsalinn.
Við vorum að fá fyrsta Ford Focus ST sportbílinn í sýningarsalinn. Kíktu við!Meira »
Ford | mán. 6. mar. 2006
Nýr Ford Focus ST fær frábæra dóma
Blaðamenn tímaritsins Autocar áttu varla orð til að lýsa hrifningu sinni með Ford Focus ST, sem fékk fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.Meira »
Ford | mán. 6. feb. 2006
Ford Focus RS WRC vinnur sænska rallið
Marcus Grönholm frá Finnlandi vann nú annan sigurinn í röð á árinu á hinum magnaða Focus RSMeira »
Ford | þri. 24. jan. 2006
Ford Focus RS WRC sigrar í Monte Carlo
Óhætt er að segja að Ford byrjar árið með stæl og að nýr Focus RS WRC rally bíllinn hafi staðið fyrir sínu í Monte Carlo.Meira »
Ford | fös. 23. des. 2005
Ford Focus ST tekur forustuna
Áhugamenn um sportbíla kætast nú. Nýr Ford Focus ST er væntanlegur í mars. Ekki missa af. Fylgstu með.Meira »
Ford | þri. 15. nóv. 2005
Ford Focus ST betri en VW Golf GTi
Hið þekkta bílablað Auto Express gerði nýverið úttekt á flokki minni sportbíla og valdi blaðið Focus ST sem...Meira »
Ford | þri. 24. maí 2005
Ford Focus Muu
Mjólkursamsamsalan fékk nýlega afhenta fjóra nýja og glæsilega bíla af gerðinni Ford Focus...Meira »
Ford | mið. 18. maí 2005
Nýr Ford Focus 4ra dyra
Við vorum að fá í sýningarsalinn einn glæsilegasta stallbak sem komið hefur á götuna...Meira »
Ford | sun. 23. jan. 2005
Mannfjöldi við frumsýningu Focus
Mikill fjöldi fólks mætti á frumsýningu á Ford Focus um helgina og er talið að um 3000 manns hafi komið í Brimborgarsalina víðsvegar um land.Meira »
Ford | fim. 20. jan. 2005
Ford Focus mun sigra keppinauta sína með rothöggi
Þessu spáir Peter Nyholm, blaðamaður Börsen í Danmörku eftir reynsluakstur á Ítalíu. Á dögunum birtist grein í bílablaði Börsen í Danmörku. Meira »
Ford | mán. 17. jan. 2005
Ford Focus frumsýndur í um helgina
Brimborg frumsýndi Ford Focus á þrem stöðum á landinu helgina 22-23. janúar: í Reykjavík, á Akureyri...Meira »
Ford | mið. 5. jan. 2005
Ford Focus sigrar í öryggisprófum Euro NCAP
Nýr og endurhannaður Ford Focus er öruggastur samkvæmt öryggisprófunum Euro NCAP í flokki millistærðar fjölskyldubíla...Meira »
Allar Ford fréttir »

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli