Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford fréttir  Prenta þessa síðu

18. maí 2012

Kuga fréttir

Ford | fös. 4. maí 2012
Nýr Ford Kuga, Escape í Bandaríkjunum, er sparneytnasti sjálfskipti bíllinn í sínum flokki
Nýi Ford sportjeppinn sem gengur undir heitinu Kuga í Evrópu en Escape í Bandaríkjunum hefur verið valinn sparneytnasti sjálfskipti bíllinn í sportjeppa (SUV) flokki af Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna. Hann er búinn 1.6 lítra EcoBoost vél og er eldsneytisnotkunin 7.13 l/100 km. Samsvarandi tölur fyrir Honda CR-V eru 7.58 l/100 km og fyrir Toyota RAV 8.4 l/100 km. Bíllinn er væntanlegur til landsins næsta vor, þá undir Kuga nafninu og mun hann einnig fást með afar sparneytinni Duratorq tveggja lítra TDCi dísilvél. Meira »
Ford | fös. 20. ágú. 2010
Ford Kuga fær frábæran dóm hjá Morgunblaðinu
Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan Brimborg afhenti fyrsta nýja Ford Kuga bílinn og í dag var Ford Kuga einnig í reynsluakstri hjá bílablaði Morgunblaðsins þar sem hann fékk frábæran dóm. Það var Finnur Orri Thorlacius sem reynsluók bílnum fyrstur og sagði hann í hnotskurn að hinn nýi Ford Kuga væri einstakur jepplingur með eiginleika lipurs borgarbíls sem skákaði keppinautunum. Meira »
Ford | fös. 13. ágú. 2010
Fyrsti Ford Kuga sportjeppinn afhentur í Brimborg
Það er eftirvænting í loftinu hjá okkur í Brimborg þessa dagana. Nokkrir nýir Ford bílar eru komnir í hús eftir að hafa þjónað bílaleigunni Thrifty í sumar. Nýju Ford Kuga og Ford Fiesta bílarnir sem komu til landsins í vor eru nú komnir í sölu hjá okkur og sá fyrsti var afhentur í vikunni. Meira »
Ford | fös. 6. jún. 2008
Ford Kuga fær hæstu einkunn á öryggisprófi
Í nýlegum öryggisprófunum á vegum NCAP í Evrópu, sem eru virt og óháð samtök, hlaut Ford Kuga hæstu heildareinkunn í sínum flokki. Inni í þeirri einkunnagjöf hlaut Kuga flest stig fyrir öryggi fullorðinna farþega og barna en einnig fyrir verndun gangandi vegfarenda. Meira »
Ford | mán. 28. apr. 2008
Ford Kuga fær fullt hús hjá Auto Express
Blaðamaður Auto Express gaf nýja Ford Kuga fullt hús stjarna eftir reynsluakstur á dögunum og sagði bílinn bera keim af einum vinsælasta fjölskyldubíl í heimi, Focus samhliða sterklegu útliti 4x4 bíls. Meira »
Ford | fim. 13. sep. 2007
Ford Kuga sportjeppinn í Frankfurt
Á bílasýningunni í Frankfurt kynnir Ford m.a. nýjan sportjeppa í flokki svokallaðra Crossover...Meira »
Ford | mið. 25. júl. 2007
Nýr Ford kemur á næsta ári: Ford Kuga
Evrópufrumsýning á nýjustu skrautfjöður Ford Motor Company, Ford Kuga er fyrirhuguð vorið 2008...Meira »
Allar Ford fréttir »

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli