Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 5. jan. 2005

Ford Focus sigrar í öryggisprófum Euro NCAP

Foscus öruggastur að mati Euro NCAP
Foscus öruggastur að mati Euro NCAP

Ford Focus dúxaði, náði 100% árangri í árekstri á framenda og 100% árangri í árekstri á hlið í öryggisprófum Euro NCAP fyrir stuttu. Focusinn sigraði þar með aðrar bifreiðategundir í flokki millistærðar fjölskyldubíla. Citroën C4 fylgdi fast á hæla Ford Focus en báðir hlutu bílarnir 35 stig.

Fullkomið öryggi Focus

Ford Focus náði 100% árangri í öryggi við árekstur bæði á framenda og á hlið. Stórglæsileg útkoma svo ekki verði meira sagt enda hafa gagnrýnendur bílatímarita víða um heim lofsungið bílinn í hástert en hann var kynntur nú í nóvember í Evrópu. Í dómum Euro NCAP var haft á orði að yfirbygging Focusins væri sérstaklega sterk og farþegarýmið öruggt. Hliðarárekstrarkerfið virkaði svo vel að það vakti undrun Euro NCAP manna sökum styrkleika. Einnig var öryggi barna mjög gott sem og öryggi gangandi vegfarenda. Við áreksturinn var álag á líkama ökumanns minniháttar, yfirbygging bílsins laskaðist lítið og hægt var að opna hurðina bílstjóramegin.

Nýr Focus væntanlegur

Við árekstur frá hlið þótti Euro NCAP mönnum varnarkerfið afar tilkomumikið en kerfið samanstendur m.a. af hliðarloftpúðum og loftpúðagardínum sem einnig verndar farþega í aftursæti. Af þessum frábæru einkunum einnar virtustu öryggisprófunarstofnunar heims má ráða að ljóst er að Ford Focus á eftir að njóta gífurlegrar hylli. Von er á nýjum Ford Focus í Brimborg innan tíðar.

Samanburður við keppinautana í flokki millistærðar bíla:

Ford Focus: Front 100% / Side 100% Heildarstig 35
Citroën C4: Front 94% / Side 100% Heildarstig 35
Opel Astra: Front 88% / Side 100% Heildarstig 34
Renault Megane: Front 88% / Side 100% Heildarstig 33
BMW 1 series: Front 88% / Side 100% Heildarstig 33
VW Golf: Front 81% / Side 100% Heildarstig 33
Toyota Corolla: Front 75% / Side 100% Heildarstig 28

Skoðaðu niðurstöður prófana Euro NCAP á Ford Focus með því að smella hér.

 

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli