Ford Mondeo er besti fjölskyldubíllinn að mati WhatCar?
Ford Mondeo hlaut nýlega enn aðra viðurkenninguna og nú sem besti fjölskyldubíll ársins að mati bílablaðsins What car? Að mati dómnefndar var það frábær hönnun Mondeo og tveggja lítra díselvélin sem heilluðu dómnefndina.
Frábærir fjölskyldubílar
Að mati ritstjóra tímaritsins, Steve Fowler „skiptir engu máli hvaða útgáfu af Mondeo er valin því allir eru bæði vel hannaðir og útbúnir fjölskyldubílar sem unaður er að aka og vera ekið í.“ Það var maðurinn á bakvið yfirburða akstureiginleika bílsins, Jens Ludman, yfirverkfræðingur Mondeo, sem tók við viðurkenningunni og sagði m.a. við það tilefni: „það væri heiður að taka við viðurkenningu fyrir nýjan Ford Mondeo. Samkeppnin er hörð og fer harðnandi og þrýstingur um að koma með eitthvað nýtt og sérstakt inn á markaðinn var mikill. Viðtökur í Evrópu hafa farið framúr okkar björtustu vonum og er gott til þess að vita að viðskiptavinir okkar séu ánægðir.“