Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 31. ágú. 2005

Ford F-series pallbílar setja heimsmet í sölu

Lariat er lúxusútgáfu af F-series
Lariat er lúxusútgáfu af F-series

Ford pallbílarnir hafa löngum verið vinsælir í Bandaríkjunum en í júlí síðastliðstnum setti Ford nýtt met í sölu þessara bíla. Í júlí einum saman voru seldir 126.905 F-series bílar sem er meiri sala en nokkurt annað ökutæki hefur náð síðan Ford Model T  var og hét. Það met er síðan árið 1920.  Rétt er þó að nefna að á þeim tíma var sala í hverjum mánuði ekki skráð heldur framleiðsla hvers mánaðar svo tölurnar eru ekki algerlega sambærilegar.  Þetta er enn ein skrautfjöðurinn í hatt Ford og bætist við langan lista viðurkenninga sem F-series hefur hlotið í gegnum tíðina.

F-series mest seldi bíll heims

Undanfarin 57 ár hefur ekkert ökutæki verið jafn mikilvægt fyrir Ford.  Undanfarin 23 hefur Ford F-series verið mest seldi bíll í heimi og í þeim samanburði eru öll ökutæki teknin með þ.e. fólksbílar, jeppar og pallbílar.  Ekkert lát er á vinsældunum heldur sýna þessar nýjustu tölur að þær eru enn að aukast. Óhætt er því að segja að Ford F-series sé best heppnaði bíllinn í allri bílasögunni.  Í flokki pallbíla hefur Ford F-series verið lang söluhæsti bíllinn undanfarin 28 ár.  Frá því að Ford kynnti F-series bílinn árið 1948 hafa verið seldir yfir 28 milljón bílar um allan heim sem er meira en margir bílaframleiðendur hafa selt af allri sinni línu frá því að þeir tóku til starfa. 

F-series pallbíll seldur á 34 sekúndu fresti

Í Ameríku er einn F-series pallbíll seldur á 34 sekúndu fresti og ef tölurnar eru skoðaðar í metmánuðinum júlí þá er verið að tala um einn F-series á 21 sekúndu fresti. “Ford er mest seldi bíllinn því viðskiptavinir okkar fara fram á það besta frá okkur og vita að þeir fá það" segir Darril Hazel, einn af forstjórum Ford.  Þú heldur aðeins toppsætinu með því að koma með nýja bíla og stöðugar endurbætur og það er einmitt það sem viðskiptavinir okkar reikna með af okkur og loforð sem við munum standa við,” segir hann ennfremur.

Enn betra verð hjá Brimborg

Í tilefni af þessu frábæra heimsmeti hefur Brimborg í samvinnu við Ford lækkað verðið á Ford F-series bílum og býður nú t.d. F-350 Lariat Crew Cab 4x4 sjálfskiptan með hinni öflugu 6,0 lítra 325 hestafla turbó dísel vél á kr. 4.028.000.- eða aðeins 3.235.000.- án vsk. Lariat er lúxusútgáfu af F-series og búnaður mjög ríkulegur. Má þar nefna leðuráklæði, litað gler “Privacy” að aftan, 18” Premium álfelgur, opnanlega afturrúðu, rafstýrð framsæti, leðurklætt stýri, upplýsta spegla í sólskyggnum,  fjarstýrða samlæsingu o.m.fl.   

Nýttu tækifærið

Nú er um að gera að nýta sér tækifærið að eignast þennan öfluga pallbíl á þessu hagstæða verði því um takmarkað magn er að ræða. Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Ford.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli