Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 18. feb. 2008

Ford Transit loks fáanlegur í Bandaríkjunum

Ford Transit Connect til sölu í Bandaríkjunum
Ford Transit Connect til sölu í Bandaríkjunum
Einn mest seldi evrópski sendibíll allra tíma, Ford Transit, er nú loksins fáanlegur á mörkuðum Norður-Ameríku. Er það Ford Transit Connect sem riðið hefur á vaðið þar vestra.

Vinsælastur í sínum flokki 

Ford Transit Connect hefur verið framleiddur allt frá árinu 1965 eða í meira en 43 ár og hafa vinsældir bílsins ekkert dalað í áranna rás, heldur þvert á móti. Á síðasta ári voru seld 225 þúsund eintök í Evrópu og er bíllinn sá mest seldi í sínum flokki. Ford tilkynnti um fyrirhugaða markaðssetningu bílsins í Norður-Ameríku á bílasýningunni í Chicago á dögunum.

Nýr markaður

Derric Kuzak, aðstoðarframkvæmdarstjóri alþjóðlegrar vöruþróunar hjá Ford, segir vaxandi eftirspurn eftir kaupum á vörum og þjónustu gegnum netið sem feli í sér heimsendingar. Þessi vaxandi þörf sé mjög áberandi í Norður-Ameríku og því hafi myndast ný viðskiptatækifæri fyrir flutningafyrirtæki og á þessum hluta markaðarins sé Transit Connect fæddur til að koma sterkt inn.

Frábært atvinnutæki

Ford Transit Connect er rúmgóður, hagkvæmur í rekstri og endingargóður vinnuhestur sem sinnt getur ólíkum og fjölbreyttum verkefnum á sviði vöruflutninga. Flutningsrýmið er vel hannað og þar má auðveldlega koma fyrir rekkum til beggja hliða eða hlaða hann tveimur Eurobrettum með vörum á.

Tvær útfærslur

Bíllinn er boðinn í tveimur útfærslum; S og L, þar sem meiri lofthæð er í L útgáfunni og flutningsdyr hærri. Farmdyr Transit Connect opnast til beggja hliða í 180° og rennihurðirnar tvær gera alla umgengni við bílinn auðveldar og þægilegar.

Hleðslurými

  • Lengd: 1739-2467 mm
  • Hæð: 1193 mm
  • Breidd milli hjólaskála: 1226 mm
  • Burðargeta: 730 kg

Fjölhæfir eiginleikar 

„Ford Transit Connect hefur alla mikilvægustu eiginleikana sem gera hann svo frábæran sem raun ber vitni. Hann hefur aksturseiginleika, rekstrarhagkvæmni og öryggi fólksbílsins, fjölbreytta nýtingarmöguleika sendibílsins og getu þungaflutningabílsins,“ segir Rob Stevens, yfirverkfræðingur Ford Transit Connect í Bandaríkjunum.

Nánari upplýsingar

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli