Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | fös. 2. sep. 2005

Frumsýnum nýjan Ford Mondeo - meiri búnaður og lægra verð

Nýr og glæsilegur Mondeo
Nýr og glæsilegur Mondeo

Nýr Ford Mondeo hefur fengið nýtt og enn glæsilegra útlit. Til viðbótar bætist síðan við ESP stöðugleikastýrikerfi (Electronic Stability Program) sem gerir bílinn enn skemmtilegri og öruggari í akstri.  Þetta öfluga kerfi fær boð frá skynjurum í hjólunum sem skynja hvort öll hjól hafi nægjanlegt veggrip sem gerir bílinn sérlega stöðugan í akstri.  Ef kerfið skynjar að eitthver hjólanna hefur misst grip eins og t.d. í beygju þar sem framendinn leitar út úr beygjunni (undirstýring) og meira grip er á afturhjólunum þá lagfærir ESP kerfið þetta sjálfvirkt og hemlar niður annaðhvort afturhjólið (eftir því í hvora átt er beygt), dregur úr afli vélarinnar og leiðréttir með því stefnuna svo bíllinn taki rétta stefnu.  Annað gott dæmi um þetta er þegar bíllinn er á hálu plani og gefið vel inn þá þekkja allir að bíllinn leitast til að fara út úr beygjunni, framendinn leitar áfram í stað þess að beygja á bíl sem ekki er útbúinn ESP. Við þessar kringumstæður eykst öryggi til muna.

Meiri búnaður - lægra verð

Brimborg býður Ford Mondeo í bestu og flottustu útgáfu – Ghia. Ford Mondeo Ghia lúxusútfærslan er einn best búni bíllinn í sínum flokki. Má sem dæmi nefna tölvustýrða miðstöð með loftkælingu, 16” Ghia álfelgur, viðaráferð í innréttingu, upphitanlega framrúðu, aksturstölvu, hraðastilli, baksýnisspegil með sjálfvirkri dimmingu, ISP öryggiskerfi, rafstillanlega og upphitanlega útispegla, rafknúnar rúður að framan og aftan, öryggispúða að framan og í hliðum, öryggispúðagardínur sem falla niður með hliðum til varnar árekstri á hlið bæði fyrir fram- og aftursætisfarþega, rafdrifin hæðarstiling á ökumannssæti, þokuljós að framan og svo mætti lengi telja. Síðast en ekki síst þá hefur Brimborg í samvinnu við Ford tekist að lækka verðið og er verðið á Ford Mondeo 2,0i Ghia 5 dyra með sjálfskiptingu nú aðeins kr. 2.490.000.-.

Komdu, sjáðu og prófaðu

Komdu á frumsýninguna, skoðaðu og reynsluaktu þessari frábæru bifreið og þú sannfærist um gæði Ford Mondeo sem við bjóðum nú á enn hagstæðara verði.

Skoðaðu nýjan Ford Mondeo

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli