Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | þri. 25. mar. 2008

Mikið flug á sölu Ford í Evrópu

Mikil söluaukning hefur orðið á bílum frá Ford í Evrópu undanfarin misseri. Sló Ford m.a. met í sölu í febrúar og nam aukningin 5,4% í heild miðað við sama mánuð í fyrra.

Focus og Fiesta sigra hjörtu Evrópubúa

Ford Focus er sem fyrr langvinsælasti bíllinn frá Ford í Evrópu og voru um 32.800 Focus bílar afhentir í álfunni í febrúar. Næstsöluhæsti bíllinn var Fiesta með um 24.900 bíla.

Ford Mondeo heillar líka

En það er ekki bara Focus og Fiesta sem heilla Evrópubúa heldur hefur Mondeo líka slegið sölumet. Nemur söluaukningin um 66% milli febrúarmánaða þessa árs og síðasta og seldust alls um 13.370 bílar af þeirri gerð í síðasta mánuði.

Ford Ranger

Sala á pallbílnum Ford Ranger gengur einnig afar vel í Evrópu um þessar mundir. Sala hans tók gríðarlegan kipp í febrúar og nam söluaukningin 200% milli febrúarmánaða. Alls voru afhentir um 1.760 palljeppar af þessari gerð í síðasta mánuði.

Ford Transit

Sendibíllinn Ford Transit jók einnig sölu sína í febrúar. Nam aukningin um 13% miðað við sama tímabil 2007. Voru um 15.470 sendibílar afhentir víðs vegar um Evrópu í síðasta mánuði.

Bretland söluhæsti markaður Evrópu

Bretland er stærsti einstaki markaður Ford í Evrópu og seldust 14.650 bílar frá Ford í febrúar. Næst kom Þýskaland sem jók söluna um 970 bíla í febrúar samanborið við sama tíma 2007 og seldi nú 14.630 bíla. Þá jókst salan einnig umtalsvert bæði á Spáni og í Frakkland. Á Spáni jókst salan um 935 bíla og seldust alls 14.390 bílar í febrúar á meðan Frakkland seldi alls 11.620 bíla í febrúar, eða 770 bílum meira en á sama tímabili árið 2007.

Mjög vaxandi styrkur Ford

„Þessi mikla velgegni okkar í febrúar má að hluta til þakka viðbrögðum við nýjum og endurhönnuðum bílum, sem við höfum kynnt að undanförnu, nú síðast í Genf, þar sem viðbrögð bæði fjölmiðla og almennings við nýjum Fiesta og Kuga staðfesta að við erum á réttri braut,“ segir Stephan Odell, aðstoðarframkvæmdastjóri, markaðs-, sölu og þjónustumála hjá Ford í Evrópu.

Nánari upplýsingar

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli