Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 5. maí 2008

Nýr Focus 2008 á fljúgandi ferð

Nýr Focus 2008 á fljúgandi ferð
Segir Dan Trent, blaðamaður hjá breska bílaveftímaritinu msn og gefur upplyftingu Ford Focus fullt hús stiga.

Vinsæll í tíu ár

Ford Focus hefur í áratug verið einn vinsælasti bíll Bretlands og er það ekki að ástæðulausu að einn af hverjum 20 nýskráðum bílum í Bretlandi sé Focus. Focus er frábær bíll og í tilefni af tíu ára afmælinu ákváðu forsvarsmenn Ford að endurhanna þennan vinsæla bíl. Markmiðið var að gera góðan bíl enn betri.

Fjölbreytt úrval útgáfa og véla

Í Bretlandi eru í boði þrjár útgáfur af Ford Focus, Studio, sem er söluhæsta útgáfan, Zetec og síðan er Titanium. Ghia útgáfan dettur út enTitanium útgáfan fær enn meiri lúxusbúnað en áður var. Til að byrja með er boðið upp 1,6i lítra bensínvél sem bæði er fáanleg beinskipt og sjálfskipt og síðan 1,6TDCi beinskipt. Fleiri vélar eru framleiddar í Focus en munu ekki koma til sölu hér á landi fyrst um sinn.

Góðir aksturseiginleikar

Aksturinn er bæði þýður og skemmtilegur að mati Trent enda Focusinn hannaður fyrir almennan markað. Trent telur að fyrsta kynslóð Focus hafi sett háleitar kröfur um aksturseiginleika sem m.a. má þakka Control Blade fjölfjöðrunarkerfinu, hjólabúnaði og mörgum smáatriðum sem skipta máli og gera akstursupplifunina enn skemmtilegri en áður, sem var þó mjög góð fyrir.

Einfaldleikinn ríkjandi

Einfaldleikinn er ríkjandi í nýju innréttingunni og er Trent er ánægður með endurhönnunina sem var orðin tímabær að hans mati. Allir takkar í mælaborði hafa fengið mýkri áferð og öll innréttingin hefur fengið meira heildarútlit en áður var.

Hagkvæmni og öryggi

Í 1,6 TDCi vélinni er minni útblástur en áður hefur sést þökk sé nýju CO2 hleðsluþjöppunni (e. CO2-based charge). Nýr Focus er með lægri viðloðunarolíu skiptingu, sem kemur sér vel bæði fyrir gæði gírskiptingar og betri nýtingu eldsneytis. Ford Focus hefur fengið fimm stjörnur hjá evrópsku öryggisstofnuninni Euro NCAP varðandi öryggi farþeganna. Mikið er lagt uppúr öryggisþáttum í staðalbúnaði Focus eins og rafstýrðum stöðugleikastýribúnaði, ESP, sjálfvirkum öryggisljósum (e. Hazard) sem blikka við neyðarhemlun, og sem val er hægt að fá loftþrýstingsnema í dekkin sem láta vita ef þrýstingur breytist í dekkjunum.

Focus byggður á sterkum grunni

Ford byggði endurhönnun Focus á því sem gert hafði verið rétt hjá fyrri kynslóðum Focus segir Trent þannig var haldið áfram að gera góðan bíl enn betri. Það hefur tekist vel að mati Trent enda er Focus frábær fjölskyldubíll, góður í akstri, öruggur og flott hannaður

Nánari upplýsingar

Sjá umfjöllun MSN um Focus

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli