Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | þri. 20. maí 2008

Ford S-MAX heillar blaðamann AutoExpress

Ford S-MAX heillar blaðamann AutoExpress
Dan Strong, blaðamaður hjá hinu sívinsæla bílaveftímariti, AutoExpress, var yfir sig hrifinn af aukabúnaði sem boðið er upp á í Ford S-Max 2,0 TDCi Títanium útgáfunni sem hann reynsluók á dögunum.

Ford S-Max er hlaðinn aukabúnaði

Strong fannst áberandi hvað aukabúnaðurinn var bæði einfaldur í notkun og aðgengilegur. Ford S-Max hefur m.a. hraðastillingu með aðlögun (e. Adaptive Cruise Control), innbyggðan radarvara og staðsetningarkerfi sem gefur góðar og skýrar leiðbeiningar. Snertiskjárinn er tímasparandi og einfaldur í notkun að mati Strong og lítið mál er að leggja S-Max þar sem hann býr yfir nákvæmum nálægðarskynjara sem hjálpa til við leggja bílnum í þröng stæði.

Ford S-Max er með gott rými og aðgengi

Mikið rými og gott aðgengi að aftari sætaröðunum heillar Strong. Að hans mati kemur S-Max sér vel fyrir barnafjölskyldur. Þannig getur fjölskyldan svifið um í fríinu áhyggjulaus með nægt rými fyrir farangur og farþega.

Nánari upplýsingar


Sjá umfjölunn AutoExpress

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli