Dave Finnegan markaðsstjóri Ford Escape sagði framleiðsluna vera í hámarki og að mikil yfirvinna hefði verið unnin síðan í lok síðasta árs. Ford hefur framleitt 59.299 eintök af Escape frá janúar til lok apríl mánaðar en það er 9.6% söluaukning. Escape hefur verið einn best seldi sportjeppinn á markaðnum en hátt eldsneytisverð hefur áhrif á sölu stærri jeppa á meðan sportjeppar eins og Ford Escape slá hvert sölumetið á fætur öðru.