Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 12. sep. 2005

Ford innkallar pallbíla og jeppa til öryggis

Ford hefur ákveðið að innkalla ákveðnar gerðir pallbíla og jeppa (SUV´s) af Ford og Lincoln gerðum vegna mögulegs leka á hemlavökva inn í bremsurofa sem aftengir hraðastilli bílsins þegar ýtt er á hemlafetil. Lekinn getur valdið tæringu og ofhitnun. Ford hafði áður innkallað bíla framleidda árið 2000 af sömu gerðum vegna þessarar mögulegu bilunar, þar á meðal sex bíla hér á landi sem Brimborg flutti inn. Nú hefur Ford Motor Company ákveðið að útvíkka innköllunina og nær hú nú til Ford F-150 1994-2002, Ford Expedition 1997-2002, Lincoln Navigator 1998-2002 og Ford Bronco1994-1996. Um lýsingu á mögulegri bilun má lesa hér.

Brimborg hefur samband við eigendur

Brimborg hefur ekki fengið formlega tilkynningu um þessa viðbót en reiknar með að fá hana senda og þá um leið lista yfir þá bíla sem Brimborg hefur flutt inn. Umsvifalaust verður haft samband við eigendur umræddra bíla þegar tilkynning hefur borist frá Ford.

Verklag við innköllun

Brimborg fær lista frá Ford yfir VIN númer (grindanúmer) þeirra bíla sem Brimborg hefur keypt af Ford og falla innan viðkomandi innköllunar. Ákveðið verklag fer umsvifalaust í gang hjá Brimborg þegar upplýsingar um innköllun berst frá okkar framleiðendum. Þá er á sannanlegan hátt haft samband við eiganda bifreiðar og hann upplýstur. Á sama tíma hefst undirbúningur t.d. með að útvega viðeigandi varahluti. Þeim eigendum sem áttu þá 6 bíla sem féllu innan þessarar innköllunar á sínum tíma var strax gert viðvart. Fyrsta þrep í þessari innköllun var að aftengja hraðastillinn þangað til varahlutir bærust. Þeir eru rétt ný komnir frá Ford og nú hefst vinna við að skipta um í þessum bílum. Það er gert skv. fyrirmælum frá Ford en Brimborg lánar endurgjaldslaust bíl á meðan til að bæta fyrir óþægindin ef bíllinn hefur upprunalega verið keyptur af Brimborg. Ekki hafa komið upp nein óhöpp hér á landi svo vitað sé.

Á líka við bíla sem fluttir voru inn beint

Brimborg mun einnig framkvæma þessa viðgerð á bílum sem fluttir hafa verið beint inn frá Bandaríkjunum og hefur náð samkomulagi við Ford Motor Company um að Ford greiði ákveðna fasta upphæð fyrir viðgerðina en umframkostnað, ef einhver verður, greiði eigandi. Reiknar Brimborg með að sama fyrirkomulag verði viðhaft varðandi þessa nýju innköllun. Ford greiðir ekki fyrir lánsbíla meðan á viðgerð stendur.

Brimborg skortir upplýsingar

Brimborg hefur áhyggjur af skorti á upplýsingum um bíla sem fluttir hafa verið inn beint, það er, hvort þar á meðal séu bílar sem kalla þarf inn í öryggisskoðun. Ástæðan er sú að væntanlega eru þessir bílar sagðir vera enn í Bandaríkjunum skv. skrám Ford Motor Company og því komast upplýsingarnar ekki til núverandi eigenda.

Sláðu inn VIN númer á heimasíðu Ford

Hvetur Brimborg eigendur Ford bíla framleidda í Bandaríkjunum að fara á heimasíðu Ford, ford.com, til að kanna málið. Byrjað er á því að velja bíltegund og síðan VIN númerið (grindarnúmer). Þá kemur í ljós hvort skoða þarf tiltekinn bíl. Þó ber að geta þess að ekki er víst að ofangreind innköllun sé kominn á vefinn. Það gæti tekið einhvern tíma. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustumóttöku Brimborgar í Reykjavík í síma 5157000 eða hjá Brimborg Akureyri 4622700.

Smelltu hér til að kanna VIN númerið.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli