05. febrúar 2012
Ford
|
fim. 10. júl. 2008
Ford Focus RS: Goðsögnin snýr aftur
Ford Focus RS: Goðsögnin snýr aftur
Ford RS merkið, sem fyrir löngu er orðið að goðsögn í bílasögunni, snýr nú aftur á göturnar sem Ford Focus RS. Spennan eftir þessu nýjasta RS módeli hefur stigmagnast undanfarið og nær nú hámarki er frumsýningin nálgast. Ford Focus RS verður frumsýndur 22. júlí næstkomandi, á Alþjóðlegu bresku bílasýningunni 2008.
Svipsterkur og sver sig í rallýættina
Á sýningunni í London verður nánast fullhönnuð gerð af Focus RS til sýnis en nokkrar breytingar kunna að vera gerðar á bílnum áður en hann fer í framleiðslu og sölu, snemma á næsta ári. Sýningarbíllinn er í björtum grænum lit með „píanósvörtum“ smáatriðum sem setja sterkan svip á heildarútlitið. Glænýr stuðari prýðir hann að framan og ítrekar breidd bílsins að aftan. Svört vindskeið við aftanverða þaklínuna, minna á fyrri RS módel en líka á hinn sigursæla Focus WRC, rallýbíl.
Hraust hjarta í glæsilegum líkama
Innréttingin vekur ekki síður athygli en þar eru það helst Recaro hágæða sportsætin, glansandi álkrómið og svart áklæði í lofti sem gefur ekta rallaksturstilfinningu. Hjartað í Focus RS er þó nýja Duratec 2,5 lítra og 5 strokka túrbóvélin sem gefur 300 hestöfl og meira en 410 Nm í togi. Fyrstu prófanir hafa ennfremur sýnt fram á að hann nái upp í hundraðið (0-100km/klst.) á undir 6 sekúndum. Þetta er því einstök vél sem fær hjartað í hverjum ökuþór til að slá örar.
Söguleg endurkoma Focus RS
Endurkoma Ford Focus RS mun án efa vekja mikla athygli meðal bílaáhugamanna, ekki síst þar sem sex ár eru síðan síðasta árgerð RS kom fram (Focus RS 2002). Þetta er í annað sinn sem Ford Focus fær að bera hinn goðsagnakennda RS titil, sem kenndur er við hágæða frammistöðu, en fyrri módel í 38 ára sögu RS eru meðal annars Ford Fiesta, Escort og Sierra.
Miklar væntingar til nýrrar goðsagnar
„Við viljum að nýji Focus RS skili sem bestri frammistöðu og veki jafn mikinn áhuga og fyrirrennararnir. Við vorum trúir RS hefðinni um spennandi en jafnframt hagkvæman götubíl, “ segir Jost Capito, yfimaður hönnunardeildar hjá Ford í Evrópu, sem stýrði verkfræðingateyminu í hönnuninni á Focus RS. Hvort Focus RS uppfylli þessar kröfur, kemur svo í ljós á bílasýningunni í London og síðar á götum úti, en telja verður líklegt að um goðsögn sé að ræða.
Nánari upplýsingar
• Greinin í heild á heimasíðu Ford
• Frekari umfjöllun og myndir