Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | mán. 14. júl. 2008

Ford S-MAX stelur senunni á verðlaunahátíð þjófavarna

Ford S-MAX stelur senunni á verðlaunahátíð þjófavarna
Annað árið í röð hefur Ford S-MAX verið valinn sigurvegari á bresku trygginga- og öryggisverðlaunahátíðinni (e. British Insurance Car Security Awards). Óhætt er að segja að bíllinn hafi stolið senunni á þessari sérstöku verðlaunaathöfn.

Tveir Fordar í bróðurlegri samkeppni

Verðlaunin eru veitt af samgöngu- og tryggingafyrirtækjum í Bretlandi í samvinnu við innanríkisráðuneytið og verðlaunað er fyrir öryggisbúnað sem snýr að þjófavörnum bifreiða. Ford S-MAX nappaði sigrinum í flokki stærri, fjölnota fjölskyldubifreiða (e. MPV) en þar var samkeppnin afar hörð. Ford Galaxy kom svo fast á hæla eða fast í dekkjaför bróður síns, réttara sagt, og náði 2. sætinu í sama flokki.

Ford S-MAX er fullbúinn vörnum gegn fingralöngum

Það sem réði úrslitunum var að sjálfsögðu víðtæk þjófavörn bílsins sem inniheldur meðal annars sterka fjarstýrða læsingu, búnað sem getur gert vélina óvirka og sýnileg einkennisnúmer ökutækis (e. VIN, Vehicle Identification Number). Einnig var hreyfiskynjari bílsins (e. inclination sensor) mikilvægur þáttur í úrskurði dómnefndar. John Cooper, forstjóri þjónustudeildar Ford, sagði valið á Ford S-MAX vera góða viðurkenningu á vinnunni sem verkfræðingar fyrirtækisins hafa lagt í að hanna sem bestar þjófavarnir. Steve Fowler, ritstjóri hjá What Car?Magazine, var sammála þessu og sagði Ford vita hvað væri mikilvægast í hugum viðskiptavina þegar kæmi að öryggisvörnum: “S-MAX stendur undir væntingum og er verðugur vinningshafi, enn á ný.“

Nánari upplýsingar

Sjá fréttina í heild sinni á heimasíðu Ford

Meira um keppnina á heimasíðu WhatCar?


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli