Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | þri. 26. ágú. 2008

Ford Escape 2009 með toppeinkunn í öryggisprófi

Ford Escape 2009 með toppeinkunn í öryggisprófi
Ford Escape og Mercury Mariner 2009 hafa verið valdir í toppsæti yfir öruggustu valkostina af umferðaröryggisstofnuninni IIHS (e. The Insurance Institute for Highway Safety).

Ford Escape og Mercury Mariner öruggastir

 

IIHS er virt stofnun á sviði öryggismála í Ameríku sem gerir miklar kröfur í prófunum sínum. Til þess að hljóta útnefninguna sem toppvalkostur í umferðaröryggi (e. Top Safety Pick), verða bílar að hljóta hæstu einkunn í háhraða árekstrarprófum. Að þessu sinni voru það fjórir bílar sem stóðust kröfurnar; Ford Escape 2009, Mercury Mariner 2009 og tvinnbílar af sömu gerðum. Sömu bílar hlutu einnig 5 stjörnur í öryggis- og árekstrarprófum á vegum Bandaríkjastjórnar nú nýlega.

Öryggisumbætur Ford bera árangur


Ford framleiðandinn hefur í gegnum tíðina áunnið sér ýmsar viðurkenningar fyrir öryggismál og er nú sá framleiðandi sem framleitt hefur flestar 5 stjörnu bifreiðar í prófum NHTSA (National Highway Traffic Safety Administration) og oftast verið valinn í toppsæti IIHS. Í umsögn IIHS að þessu sinni kom meðal annars fram að ýmsar öryggisumbætur hefðu verið gerðar í 2009 árgerðum Ford, á loftpúðum og sætis- beltum, auk þess sem meiri áhersla væri lögð á farþegavernd í framanákeyrslum.

Öryggi og styrkur í Escape og Mariner

 

 Árangurinn í þessum prófunum, undirstrikar áherslur Ford í öryggismálum. „Við höfum eytt ótal mörgum stundum í að rannsaka og betrumbæta yfirbygginguna, öryggisbeltin og loftpúðana í Escape og Mariner í því skyni að ná fram auknu öryggi í framaná- og hliðarákeyrslum,“ sagði Steve Kozak, yfirverkfræðingur öryggismála hjá Ford. En styrkleiki þessara gerða liggur einmitt í sterku stáli yfirbyggingarinnar, stöðugleika- stýringunni og hliðarloftpúðunum. „Við höfum fært sportjeppana okkar upp á hærra öryggisstig,“ sagði Kozak.

Nánari upplýsingar


Greinin í heild


Heimasíða IIHS




Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli