Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | mið. 24. sep. 2008

Ford Escape Hybrid meðal 10 grænustu bíla heims

Ford Escape Hybrid meðal 10 grænustu bíla heims
Ford Escape 2008 tvinnbíllinn var meðal 10 efstu í valinu á visthæfustu bílunum, að mati bílasíðunnar Bláa bók Kelley (e. Kelley Blue Book). Hann var auk þess kosinn hreinasti og sparneytnasti jeppi plánetunnar. Barack Obama, forseta- frambjóðandi demókrata, er meðal þeirra sem hafa nýtt sér græna krafta hans.

Ford Escape Hybrid fjölhæfastur

 

Ritstjórar hinnar vinsælu bílasíðu kbb.com settu saman topp 10 lista yfir „grænustu“ bílana á markaðnum. Við valið var líka litið til fleiri atriða en visthæfni, sparneytni og verðs. Þægindi, frammistaða og tækni voru einnig metin. Fjölhæfni Ford Escape Hybrid á þessum sviðum þótti skara fram úr, ekki hvað síst í tækni og hönnun. „Margir sportjeppar eru hannaðir með hallandi afturrúðu en slík hönnun hefur áhrif á notagildi ökutækja,“ sagði Jack R. Nerad, rit- og markaðs- stjóri hjá KBB: „Escape tvinnbíllinn sameinar hins vegar glæsilegan stíl og góða nýtingu á rými.“

Ford Escape Hybrid grænn í gegn


Þegar að því kom að velja grænustu og sparneytnustu bílana, smellpassaði Escape Hybrid inn á listann með meira en 800 km í borgarakstri á einum bensíntanki og lágan útblástur sem er langt undir reglugerðarviðmiðum SULEV II (Super Ultra Low Emissions Vehicle). „Bíllinn er bæði grænn að innan og utan,“ sagði David Finnegan, markaðsstjóri hjá Ford þegar KBB hafði tilkynnt um topp tíu listann. „Innréttingin inniheldur fyrsta 100% endurvinnanlega sætisáklæðið,“ bætti Finnegan við og var sammála ritstjórunum um að í Escape Hybrid 2008 sameinist; visthæfni, sparneytni, gott rými og fjölhæfni.

Nánari upplýsingar


 

Greinin í heild


Grein um bílaflota forsetaframbjóðenda Bandaríkjanna


Meira um Escape Hybrid á heimasíðu Ford


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli