Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | mán. 20. okt. 2008

Viðskiptablaðið reynsluók Ford S-Max

Viðskiptablaðið reynsluók Ford S-Max

Guðjón Guðmundsson, blaðamaður Viðskiptablaðsins, prófaði Ford S-Max með dísilvél á dögunum. Hér kemur úrdráttur úr umfjöllun hans en fyrirsögnum hefur verið breytt.

S-Max er sportlegur og rúmgóður

S-Max er einn af stærri fjölnotabílunum á markaði og er einungis boðinn með sætum fyrir sjö. Bílar af þessu tagi hafa ekki notið jafn mikila vinsælda hérlendis og í Evrópu, nema þá einna helst á meðal leigubílstjóra. Þetta eru þó kjörnir bílar fyrir barnmargar fjölskyldur og S-Max er sportlegri útlits en flestir aðrir fjölnotabílar. Öll hönnun gengur þó út á mikið og nýtanlegt innanrými og um leið er mikið lagt í inn- réttingar og búnað.

S-Max þægilegur og skemmtilegur í akstri

Bíllinn er afar þægilegur í allri umgengni. Það er gott að setjast inn í hann og stíga út úr honum og undir stýri gefur hann tilfinningu fyrir miklu rými. Eins og systurbíllinn Mondeo býr S-Max yfir fyrirtaks aksturseiginleikum. Stýrið er nákvæmt og með mikla svörun og fjöðrunin fremur stíf, sem stuðlar að lágmarks hliðarhreyfingum á yfir- byggingunni í beygjum. Að þessu leyti minnir S-Max meira á aksturseiginleika góðra langbaka en hábyggðra fjölnotabíla. Það er mikið jafnvægi í akstri bílsins og það sem meira er; það er gaman að keyra hann.

Nánari upplýsingar


Um Ford S-Max á heimasíðu Brimborgar



Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli