Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 17. nóv. 2008

Ford sækir þegar aðrir verjast

Alan Mulally segir að sterk sókn sé besta vörnin.
Það þarf vart að fræða neinn um þá erfiðu stöðu sem blasir við fyrirtækjum um heim allan vegna alþjóðlegu fjármálakreppunnar. Á meðan amerískir bílaframleiðendur á borð við GM og Chrysler bregðast við bágu efnahagsástandi með því að draga saman seglin og hætta við framleiðslu á nýjum bifreiðum hefur Ford tekið annan pól í hæðina. Ford hefur, andstætt við aðgerðir samkeppnisaðila, ákveðið að flýta framleiðslu á nýjum bílategundum og hyggst þannig troða marvaðann í þeim ólgusjó sem efnahagur heimsbyggðarinnar er staddur í.

Sókn er eina leiðin til að lifa af

„Eina leiðin til að vera áfram í þessum bransa er að framleiða vörur sem fólk vill og kann vel að meta. Þetta er kjarninn í því að skapa lífvænlegt fyrirtæki,“ segir Alan Mulally framkvæmdastjóri Ford. Enn sem komið er hefur einungis þurft að seinka einum Ford bíl, sem hafði ekki verið formlega kynntur, og vonir standa til að ekki þurfi að fresta framleiðslu á fleiri bifreiðum. Þessar aðgerðir munu þó kosta sitt og hefur Ford boðað til ýmissa sparnaðaraðgerða til að unnt sé að flýta framleiðslu nýrra bíla.

Lífvænlegt fyrirtæki líklegra til að hljóta lán


Mikið hefur verið fjallað um bága stöðu bílaframleiðenda vestanhafs og líklegt er að bandarísk stjórnvöld munu þurfa að leggja sitt af mörkum til að bílaframleiðsla geti haldið áfram. Mulally telur að þessar aðgerðir Ford munu gera það að verkum að fyrirtækið verði enn líklegra til að hljóta lán eða styrk frá ríkinu, ef þess þurfi. „Hver sá sem ætlar að fjárfesta í okkur eða lána okkur vill fá að vita að við séum að grípa til viðeigandi aðgerða til að skapa fyrirtæki sem er lífvænlegt til framtíðar. Þetta eru án efa réttu aðgerðirnar til að tryggja það,“ segir Mulally. Vert er þó að taka fram að aðgerðir Ford stefna að því að inngrips bandarískra stjórnvalda gerist ekki þörf.

Frekari upplýsingar


Nánar um aðgerðir Ford

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli