Brimborg kynnir um mánaðarmótin nýjan Ford F150 á alveg einstaklega hagstæðu verði. Þetta er einn vinsælasti pallbíll í heimi enda öflugur, vel búinn bíll á góðu verði. Sem dæmi um verð má nefna að Ford F150 SuperCrew Lariat í lúxusútgáfu, sem er bókstaflega drekkhlaðinn búnaði, mun kosta aðeins frá kr. 3.495.000.-. Sami bíll í King Ranch útfærslunni verður boðinn á aðeins kr. 3.795.000.-.
Brimborg mun bjóða allar undirgerðir F150 bílsins og verður heildaryfirlit fyrir verð allra gerða Ford F150 tilbúið í næstu viku. Láttu þetta hagstæða verð ekki renna þér úr greipum, fyrsta sendingin er nú þegar að verða uppseld. Komdu núna, söluráðgjafar Ford taka vel á móti þér. Nánari upplýsingar hér.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan