Ward Automotive Group hefur valið 2.5 lítra I-4 vél Ford Escape tvinnbílsins sem eina af tíu bestu bílvélum ársins á Bandaríkjamarkaði.
Ward Automotive Group hefur valið 2.5 lítra I-4 vél Ford Escape tvinnbílsins sem eina af tíu bestu bílvélum ársins á Bandaríkjamarkaði. Þetta er mikil viðurkenning fyrir hið góða þróunarstarf sem Ford hefur unnið af hendi en það sem gerir viðurkenninguna enn ánægjulegri er sú staðreynd að vél Ford var eina tvinnvélin sem komst á lista Ward Automotive Group.
Ford á hrós skilið
„Verkfræðingar Ford hafa staðið sig einstaklega vel,“ sagði Drew Winter ritstjóri Ward’s Autoworld tímaritsins þegar listinn var kynntur. „Í tvinnbílum skiptir hugbúnaðurinn gríðarlega miklu máli. Þegar hugbúnaðurinn, sem stjórnar því hvernig afl er fært á milli rafmagns og eldsneytis, er illa gerður verður akstursupplifunin skrykkjótt og dapurleg. Þegar vel er staðið að verki þá færir það akstursánægjuna upp á æðra plan. Þar liggur munurinn á vel útfærðu aflkerfi og vísindatilraun.“ Dómnefnd var einstaklega hrifin af því hvernig Ford Escape tók á þessari færslu á milli rafmagns og eldsneytis ásamt því sem bíllinn var sagður vera vel úr garði gerður.
Vélin skapar bílinn
Á meðal þess sem dómnefnd tók til skoðunar voru hin hefðbundin atriði svo sem kraftur, togafl og fleira. Í tilfelli Ford vélarinnar þótti hún á góðan hátt sýna þær miklu framfarir sem hafa orðið á tvinntækninni. „Eitt af þeim atriðum sem við lítum á er hvort að vélinn selji bílinn. Við teljum að í tilfelli Escape tvinnbílsins þá geri vélin það. Bíllinn sýnir okkur að það er hægt að komast langt og hratt á bílum sem eru knúnir áfram af rafmagni,“ bætti Winter við.