18. maí 2012
Ford
|
mán. 12. jan. 2009
Öruggasti pallbíll Ameríku
Ford F-150 er líklega öruggasta bifreið N-Ameríku.
2009 árgerð Ford F-150 verður héðan í frá að teljast öruggasti pallbíll Bandaríkjanna eftir að bifreiðin hlaut fimm stjörnur í opinberum árekstrarprófunum þar í landi. Því til viðbótar hefur F-150 fengið toppeinkunn eftir prófanir IIHS, Insurance Institute for Highway Safety.
Með flestar opinberar viðurkenningar
„Fimm stjörnu einkunnin sem og viðurkenning IIHS sýna vel hversu ákveðin við hjá Ford erum í að tryggja öryggi vegfarenda þar sem við erum með fleiri opinberar öryggisviðurkenningar heldur en nokkur annar aðili á markaðnum,“ segir Susan Cischke, yfirmaður hjá öryggis- og umhverfissviði Ford. „2009 árgerð F-150 skartar þar að auki fleiri öryggiskerfum sem staðalbúnaði heldur en nokkur önnur bifreið sömu stærðar. Þetta er hluti af ákveðinni sókn okkar til að tryggja öryggi milljóna viðskiptavina okkar.“
Viðskiptavinir kunna vel að meta öryggið
Samkvæmt nýrri könnun Ford í Bandaríkjunum nefna 83% F-150 kaupenda öryggismálin sem helstu ástæðuna fyrir því að þeir völdu þennan tiltekna bíl. „Viðskiptavinir okkar velja F-150 því þeir vilja bíl sem getur mætt þörfum þeirra án málamiðlunar, hvort sem er í leik eða starfi. Hvort sem þeir eru að flytja þungan búnað á vinnustað eða fara með fjölskylduna, með bát í eftirdragi, í fríið þá veitir F-150 þeim öryggi, frammistöðu og sparneytni sem enginn aðili á markaðnum getur jafnað,“ segir Steve Kozak, yfirverkfræðingur öryggissviðs Ford.
Margverðlaunuð bifreið
2009 árgerð Ford F-150 hefur svo sannarlega fallið í góðan jarðveg en bíllinn var sú bifreið sem seldist í hvað flestum eintökum á nýliðnu ári í Bandaríkjunum. Þá hafa gagnrýnendur verið iðnir við að verðlauna bílinn en hann vann til fjölmargra verðlauna á síðastliðnu ári. Þó svo að árið 2009 sé nýhafið hefur F-150 þegar fengið sín fyrstu verðlaun en hann var um síðastliðna helgi valinn besti trukkur Bandaríkjanna á hinni víðfrægu NAIAS sýningu í Detroit, North American International Auto Show. Á meðal verðlauna síðasta árs má nefna:
Trukkur ársins 2009 – Motor Trend
Besti trukkur Texas og besti lúxus pallbíllinn – Texas Auto Writers Association
Trukkur ársins 2009 – Detroit Free Press
Trukkur ársins 2009 – Detroit News
Besti alhliða hálfs tons trukkurinn – PickupTrucks.com
Besti endurhannaði bíllinn 2009 – Kelley Blue Book’s, kbb.com
Frekari upplýsingar
Fréttatilkynning Ford varðandi góðan árangur F-150
Viðurkenning F-150 á bílasýningunni í Detroit