Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | mið. 8. apr. 2009

Rafknúinn Ford Explorer 4x4 FCV kynntur í Brimborg

Bíllinn var formlega afhentur í Brimborg í gær að viðstöddum Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra.
Nú býðst einstakt tækifæri til að koma í Brimborg og skoða og reynsluaka fyrsta rafknúna jeppanum í fullri stærð. Brimborg og Ford, í samstarfi við Íslenska NýOrku, hafa flutt til landsins Ford Explorer 4x4 FCV jeppa sem knúinn er rafmagni, sem framleitt er með vetni. Bíllinn er sá eini sinnar tegundar og verður hann á landinu til loka árs 2010. Hann leggst þó í ferðalag í næsta mánuði, þegar hann fer til Noregs og tekur þátt í vetnisbílarallýi sem fer fram 11.-13. maí. Ekið verður frá Osló til Stavanger og fara tveir Ford rafvetnisbílar frá Íslandi á vegum Íslenskrar NýOrku.

Bíllinn var formlega afhentur í Brimborg á mánudaginn að viðstöddum Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra. Ráðherra fór í stuttan bíltúr á bílnum og sagði mjög þægilegt að aka honum, enda afar hljóðlátur.

Rafbílar engir eftirbátar

Sú ímynd hefur jafnan fylgt rafbílum að þeir séu kraftlitlir og hafi lítið drægi. Með auknu samspili rafgeyma og annarra orkubera, svo sem vetnis, er þó hægt að smíða bíla sem uppfylla allar nútímaþarfir. Með samspili rafmótora og vetnis er hægt að uppfylla allar kröfur um drægi bíla, áfyllingarhraða, kraft, stærð og mengunarlausa tækni. Ford Explorer 4x4 FCV er sönnun þess.

Gestum Brimborgar býðst að reynsluaka Ford Explorer rafvetnisjeppanum til og með 15. apríl, og fá þannig tilfinningu fyrir framtíðinni.

Nánari upplýsingar:


Frétt á vef RÚV af afhendingu jeppans

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli