Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | þri. 21. apr. 2009

Ford Mondeo fær fimm stjörnur af fimm mögulegum

Ford Mondeo - hinn fullkomni fjölskyldubíll
Blaðamaður What Car? tímaritsins er yfir sig hrifinn af 2009 Ford Mondeo. Í dómi sínum um bílinn hrósar hann búnaði jafnt sem aksturseiginleikum í hástert og segir litla ástæðu til að leita lengra eftir rúmgóðum fjölskyldubíl með kraft undir húddinu.

Kraftur og akstur

Bíllinn er fáanlegur með fimm mismunandi bensínvélum og fimm mismunandi dísilvélum. Blaðamaður What Car? ók bíl með 2.0 lítra 138 hestafla túrbódísilvél, sem búist er við að verði vinsælust hjá viðskiptavinum Ford. 2.2 lítra dísilvélin er hraðskreið, kraftmikil og hagkvæm, en gagnrýnanda What Car? þykir hún þó ekki eins sveigjanleg og hún gæti verið vegna viðkvæmrar skiptingar. Sú kraftmesta - fimm strokka, 2.5 lítra bensínvélin skilar enn meiri krafti og það urrar hressilega í henni þegar gefið er vel inn. Sex gíra skipting er fáanleg með 2.0 og 2.2 lítra vélunum.

Aksturseiginleikar Mondeo henta öllum að mati What Car? Akstursáhugamenn elska hve bíllinn lætur vel að stjórn, hve veggripið er gott og hve svörunin er góð við stýringu, á meðan þeir sem eru meira í langferðum kunna að meta hve Mondeo liggur vel á hvaða undirlagi sem er. Þegar fjölskyldan er komin um borð í Ford Mondeo er bíllinn í essinu sínu. Hægt er að panta mismunandi fjöðrun sem aukabúnað, en blaðamaður spyr til hvers maður ætti að gera það þegar staðlaða útgáfan er eins góð og raun ber vitni.

Fínstillingar

Bíllinn er mjög hljóðlátur og er hávaði vegna loftmótstöðu lítill við hámarkshraða. Þótt einhver veghljóð berist inn þegar keyrt sé yfir gróft undirlag, þá er það ekki til ama segir í dómi What Car? Að sama skapi sé vélin hljóðlát og það sé aðeins örlítill titringur í lausagangi sem komi upp um 138 hestafla TDCi dísilvélina.

Gæði og áreiðanleiki

Innandyra býður Ford Mondeo upp á glæsilega innréttingu með mjúku yfirborði á mælaborði og allir rofar virka af nákvæmni. Þá er hægt að fá stjórnborðið í háglans og með flottri grafík. Plast á neðri hluta innréttingar er á köflum gróft og hart segir í dómi What Car? en það sé þó allt sterklegt.

Öryggi

What Car? segir þá tíma liðna þegar hægt hafi verið að komast inn í Ford með bognu vírherðatré, og segir Mondeo einn traustasta bíl sem völ sé á. Öryggið sé einnig til fyrirmyndar með þróuðu árekstrarkerfi og kerfi sem vernda á gangandi vegfarendur. Allir bílarnir eru með stöðugleikastýrikerfi og sjö loftpúða, þar á meðal einn sem verndar hné ökumanns.

Við stýrið

Það fyrsta sem gagnrýandi What Car? tekur eftir þegar hann sest við stýrið, er hve stór bíllinn er. Sætið sé hátt og á því séu margar stillingar svo allir ættu að geta fundið þægilega stöðu. Mælaborðið er einfalt en leiðsögukerfi með snertiskjá geri hlutina óþarflega flókna.

Rými og hagkvæmni

Það er sérstaklega auðvelt að komast inn í og út úr Ford Mondeo, einkum vegna dyra sem opnast vel. Þegar sest er inn, er meira en nóg pláss fyrir fætur og herðar. Þar að auki er farangursrými bílsins nógu stórt til að týnast í og hægt að leggja niður aftursætin í sitt hvoru lagi sem gæti orðið til þess að einhverjir hugsi sig um tvisvar áður en þeir leggja inn pöntunina á fjölnotabílnum, eins og segir í dómi What Car?

Græjur

Mondeo bíllinn er á góðu verði en það þýðir ekki að Ford hafi sparað græjurnar. Allir bílarnir eru með loftkælingu, hraðastilli (cruise control), fjarlæsingu, rafmagni í framrúðum, hitaða framrúðu og geislaspilara með MP3 tengingu sem staðalbúnað.

Nánari upplýsingar:

Grein á vef What Car? Magazine

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli