Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 2. nóv. 2005

Brimborg lækkar verð á Ford Freestyle 4x4

Freestyle er á enn betra verði en áður
Freestyle er á enn betra verði en áður

Vegna hagstæðs samnings við Ford og hagstæðrar gengisþróunar hefur Brimborg verið að lækka verð á öllum Ford bílum að undanförnu. Brimborg hefur ávallt boðið viðskiptavinum sínum hagstætt verð með tilliti til gengis, annaðhvort með því að lækka verðið eða bjóða meiri afslátt. Nú er valin sú leið að lækka listaverð. Nú færðu Ford Freestyle SEL 4x4 á aðeins kr. 3.660.000 og Freestyle í Limited útfærslunni á aðeins kr. 3.940.000.

Sérlega vel búinn Freestyle

Ford Freestyle er sérlega vel búinn og mjög rúmgóður 7 manna bíll.  Hann er búinn hinu öfluga HALDEX fjórhjóladrifi með spólvörn. HALDEX er rafeindastýrt fjórhjóladrif sem nemur grip hvers hjóls og færir aflið út í þau hjól þar sem grip er fyrir hendi og er Freestyle því einstaklega rásfastur og öruggur. Freestyle er búinn 203 hestafla þriggja lítra V6 vél. Eyðslan kemur hins vegar á óvart því hún er aðeins um 11,2 lítrar í blönduðum akstri.

Komdu og prófaðu Freestyle

Komdu núna og nýttu þér þetta hagstæða verð á nýjum Ford Freestyle. Við eigum takmarkað magn bíla á lager, nýttu þér tækífærið á meðan gengi krónunnar er svona sterkt.  Það gæti breyst! Smelltu hér!

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli