Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | fös. 24. apr. 2009

Ford Fusion besti bíllinn í millistærð

Ford Fusion tvíorkubíllinn - sá besti

Það skiptir ekki máli hvaða Ford Fusion þú velur, hann verður góður.

Þannig hljómar upphafið á grein á vef dagblaðsins Detroit News þar sem Ford Fusion er hrósað í hástert og hann sagður betri en Honda Accord og Toyota Camry. Hann seljist enn ekki í eins mörgum eintökum og þessir tveir keppinautar, en hann ætti að gera það.

Til greina komi nýi Fusion Sport með sex strokka 3.5 lítra vélinni, eða endurbætta grunnmódelið sem er fáanlegt með nýrri 2.5 lítra I-4 vél með sex gíra sjálfskiptingu, sem eykur bæði afl og sparneytni. Þá komi líka til greina hátækni tvíorkuútgáfan með bensín-rafmagnskerfi sem kemur eyðslunni undir 6 lítra á hundraði án nokkurra vandræða.

Langmesta fjölbreytnin í sömu línu

Ford býður nú upp á langbesta úrvalið í flokki bíla í millistærð að mati blaðamanns Detroit News. Enginn framleiðandi bjóði eins mikla dýpt í einu og sama módelinu og Ford. Að fjölbreytninni undanskilinni, slái handverkið í allri Fusion línunni keppinautunum við.

Eftir þriggja vikna reynsluakstur á Sport, tvíorku- og grunnmódeli Fusion bílsins, þótti blaðamanni erfitt að velja sitt uppáhald. Hver þeirra virðist vera sjálfstætt módel frekar en mismunandi útgáfur af sama bíl. Hann viti að það sé ótrúlegt, hann trúi því varla sjálfur. Þá segist hann gera sér grein fyrir að hann verði sakaður um að halda með heimaliðinu - en Ford er framleiddur í Detroit - en það skipti engu. Annarrar-kynslóðar Fusion bílarnir séu framúrskarandi. Hver þeirra hafi eigin persónuleika, sé búinn afbragðs aksturseiginleikum og sé innréttaður þannig að í stað þess að segja „þetta er flott“, segi maður „vá, þetta er floooott!“

Eftir áratug þar sem væntingar til fjölskyldubíla í millistærð hafi farið minnkandi hafi Ford nú neglt bíl sem ætti að vekja vonir í Dearborn, sem er í nágrenni við Detroit og hýsir höfuðstöðvar Ford.

Spennandi breytingar

Líkt og með aðrar breytingar sem gerðar hafi verið á Fusion bílnum, hefjist þær að innan og vinni sig svo út á við. Ford hafi sett nýja vélarhlíf á bílinn, breytt útliti bílsins að framan og sett ný fram- og afturljós. En ytri breytingar fölna í samanburði við þær sem sjást ekki með berum augum að sögn blaðamanns.

Fyrsta megi nefna vélalínuna. 2.3 lítra vélinni úr fyrra módeli hafi verið skipt út fyrir fjögurra strokka, 2.5 lítra vél. Vélin er staðalbúnaður í grunnmódeli Fusion og í tvíorkubílnum. Í báðum tilvikum sé svörunin frábær. Fjögurra strokka beinskipta útgáfan sé vel geymt leyndarmál, og það veiti mun skemmtilegri akstursupplifun að aka þeirri útgáfu en sex strokka, sjálfskipta bílnum.

Fusion Sport er að sjálfsögðu útbúinn nýrri vél: Sex strokka og 3.5 lítra. Blaðamaður segir reynsluaksturinn á fjórhjóladrifna Fusion Sport hafa verið stórskemmtilegan. Bíllinn hafi skorið hornin, verið hraður upp og hann hafi virst furðulega léttur þrátt fyrir að honum hafi verið gefið ríflegar inn en vant sé með fólksbíla í millistærð.

Fusion Hybrid stenst allan samanburð

Ford hefur hert á fjöðruninni til að veita meiri nákvæmni í stýringu og gert ýmsar smáar breytingar til að gera aksturinn hljóðlátari. Og ef áhugi sé fyrir alveg ógnarlega hljóðlátum akstri, þá sé tvíorkubíllinn málið. Hann renni hljóðlaust áfram á sjálfumgleðinni og standist allan samanburð við japanska keppinauta. Hann komist í 75 km/klst. á raforku einni saman og komist rúma 1100 kílómetra á einum tanki. Notaður sé mýgrútur tækniatriða til að fá sem mest út úr hverjum bensíndropa, draga úr skaðlegum útblæstri og nýta þá orku sem venjulega fer forgörðum við hemlun. Bætið við þetta krafti venjulegrar bifreiðar og þá má kalla Fusion tvíorkubílinn besta tvíorkubílinn sem í boði sé í dag að mati blaðamanns.

Smáatriði innandyra bætt

Önnur stór breyting á Ford Fusion er á ýmsum atriðum innandyra. Blaðamaður segir Sport útgáfuna sem hann hafi reynsluekið hafa verið svo bláa innandyra að hann hafi varla trúað því að hún gæti verið svo blá. Þá fylgdi allur sá búnaður sem búast mætti við – og líka búnaður sem ekki hafi verið búist við. Sync, afþreyingar- og leiðsögubúnaður Ford, sé sá besti sem völ sé á. Mælaborðið hafi fengið fágaðra útlit og allt innviði bílsins sé úr úrvalsefnum.

Að lokum segir blaðamaður að Ford hafi bætt ýmis atriði frá fyrra módeli Fusion bílsins, auk þess að nýta annað frá öðrum Ford útgáfum, og útkoman sé bíll sem sé betri en summa hluta hans. Samanlagt, sé Fusion einn besti bíllinn sem völ sé á, í hvaða útgáfu sem er.

Til gamans má geta, að Ford hefur ákveðið að framleiða fleiri bíla á öðrum ársfjórðungi en áður hafði verið gert ráð fyrir. Er það aukinni eftirspurn eftir Ford Fusion að þakka. Framleiðslan hafði, eins og gefur að skilja, dregist verulega saman frá fyrra ári, en vinsældir Fusion reyndust meiri en spáð hafði verið fyrir um og er því líka jákvæðar fréttir að finna í bílaiðnaðinum.

Nánari upplýsingar:

Grein um Ford Fusion á vef Detroit News
Frétt af aukinni framleiðslu hjá Ford


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli