Ford Fusion tvíorkubílnum, sem er sparneytnasti fólksbíllinn í millistærð sem fáanlegur er í Bandaríkjunum, var ekið af hópi sérfræðinga. Hópurinn samanstendur af verkfræðingum sem hafa sérhæft sig í tvíorkubílum, sparaksturssérfræðingi og NASCAR ökukappa. Hópnum tókst að koma eyðslunni niður fyrir 2,9 lítra á hverja hundrað kílómetra með því að beita sparakstursaðferðum.
Hópurinn náði 1600 kílómetra markinu eftir um 48 stunda akstur og var fyrirliðinn, Carl Edwards NASCAR ökuþór, undir stýri. Lagt var af stað frá Virginíufylki að morgni laugardagsins 25. apríl og kom bíllinn til Washington, DC þann, 28. apríl.
Tilgangurinn með akstrinum var að sýna fram á einbeitni Ford við að vera í hópi þeirra bestu þegar kemur að sparneytni í öllum flokkum bifreiða, og um leið að safna fé til rannsókna á sykursýki.
Liðið framkvæmdi einnig rannsóknir á leið sinni fyrir fjölmiðla og viðskiptavini í Fusion tvíorkubílnum og gaf viðtöl og sýndi hvernig einfaldar leiðir geta skipt sköpum við að auka sparneytni. Liðið hlóð einnig reglulega inn myndum og myndböndum af ferðinni á YouTube, Flickr, Facebook, Twitter og www.media.ford.com. Tengla á þessar síður má finna hér að neðan.
Samkvæmt nýjustu fréttum á YouTube tæmdist bíllinn af bæði bensíni og rafmagni um klukkan 10 að staðartíma þriðjudaginn, 28. apríl. Þá hafði bíllinn lagt að baki 2326 kílómetra og samanlögð eyðsla í ferðinni var tæplega 2,9 lítrar á hundraði.
• Að hægja ferðina og gefa jafnt inn
• Að draga jafnt úr hraða og hemla rólega
• Að halda góðu bili á milli bíla og gera ráð fyrir utanaðkomandi aðstæðum í umferðinni
• Að láta bílinn renna í gír að rauðu ljósi og stöðvunarskyldu til að draga úr eyðslu og sliti á hemlum
• Að halda notkun á miðstöð og loftkælingu í lágmarki til að minnka álag á vélina
• Að hafa glugga lokaða á miklum hraða til að draga úr loftmótstöðu
• Að beita „gefa inn og renna“ aðferðinni á sama tíma og umferðarhraða er haldið
• Að draga úr álagi á vélina með því að nota hreyfiorku bílsins þegar farið er upp brekkur og nota skriðhraða á leið niður til að ná upp hraða
• Að forðast holur í vegi og misfellur sem geta truflað skriðhraða
• Frétt á vef Ford
• Ford 1000 mile challenge á YouTube
• Ford 1000 mile challenge á Twitter
• Ford 1000 mile challenge á Facebook
• Ford 1000 mile challenge á Flickr
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan