Ómar Raganarsson og Einar Vilhjálmsson ásamt visthæfa Ford Explorer SporTrac pallbílnum.
Ómar Ragnarsson og Einar Vilhjálmsson, markaðsstjóri Metan hf., aka fyrstir manna hringinn um landið á alíslensku metangasi. Lagt verður af stað í þessa umhverfisvænu hringferð í fyrramálið (föstudaginn 24. júlí) á Ford Explorer SportTrac.
Íslenskt á tankinn, já takk!
Nemendur í Borgarholtsskóla sáu í samstarfi við Sorpu og Metan hf. um breytingar á vél bílsins, sem getur nú gengið fyrir bæði metani og bensíni. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á metangasi sem innlendu og umhverfisvænu eldsneyti. Metan (CH4) er loftegund sem unnin er hér á landi úr hauggasi og fer framleiðslan fram á sorpurðunarstað höfuðborgarsvæðisins í Álfsnesi. Ávinningurinn af notkun þess sem eldsneyti er ótvíræður, hvort heldur litið er til umhverfisverndar eða gjaldeyrissparnaðar þjóðarinnar. Síðast en ekki síst, þá er metan mun ódýrara en hefðbundið eldsneyti eða 87,50 kr. sé verðið á því borið saman við 1 lítra af 95 okt. bensíni. „Tilgangurinn með hringferð okkar Ómars er að undirstrika fyrir þjóðinni þau miklu verðmæti sem felast í því að geta framleitt umhverfisvænt ökutækjaeldsneyti. Samtakamáttur er allt sem þarf til að þjóðin geti notið þess ávinnings sem fylgir sjálfbærni í eldsneytismálum – rekstrarlega, þjóðhagslega og umhverfislega,“ segir Einar um ferð þeirra félaga.
Nýir Ford bílar
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan