Fyrsti Iacocca Mustang bíllinn seldur fyrir tæpar 16 milljónir
Lee Iacocca við hlið 45 ára afmælisútgáfu Ford Mustang, sem nefnd er eftir honum
Fyrsti Mustang bíllinn af 45 sem framleiddir verða undir nafni Lee Iacocca, var nýlega seldur á uppboði í Bandaríkjunum fyrir 125.000 dollara, eða sem samsvarar tæpum 16 milljónum króna. 45 ára afmælisútgáfa Mustang bílsins var smíðuð til heiðurs Lee Iacocca, sem oft er kallaður faðir Mustang bílsins.
Eins og áður hefur komið fram, er yfirbygging bílsins hönnuð af Michael Leone og hann er smíðaður af Gaffoglio Family Metalcrafters. Bíllinn verður framleiddur í aðeins 45 eintökum og er 5 hestöflum öflugri en hefðbundna 4.6 lítra, 8 strokka Ford vélin; hægt er að fá hann með 400 hestafla útgáfu með forþjöppu. Kappakstursfjöðrun er staðalbúnaður en 14 tommu Ford kappakstursbremsur eru fáanlegar sem aukabúnaður.