Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | fim. 19. nóv. 2009

Ford Focus RS er "alltof skemmtilegur"

Grænt er skilyrðislaust vænt ef marka má umfjöllun Motor TV í Danmörku um Ford Focus RS
Danir hafa lengi verið þekktir fyrir góðan húmor enda eiga þeir auðvelt með að skemmta sér, njóta lífsins og hafa það huggulegt.
Ford Focus RS er einn þeirra bíla sem snýst fyrst og fremst um fyrsta atriðið og því kemur það kannski ekki á óvart að blaðamaður hins danska Motor TV skuli hafa kolfallið fyrir hinum eiturharða Focus RS.

Það var bílaskríbentinn Mick Østergaard sem tók hinn eiturgræna RS bíl til kostanna á fyrrum Formúlu 1 brautinni Jótlandshringnum í Danmörku. Það er skemmst frá því að segja að Mick réð sér ekki af kæti yfir bílnum. Hann skríkti og skrækti í hverri beygju og var óspar á lýsingarorðin á meðan á akstrinum stóð.

Meðal annars sagði Mick „það er langt síðan ég hef skemmt mér svona mikið“ en einnig fannst honum bíllinn koma verulega á óvart í brautinni og það þrátt fyrir að bíllinn skarti Recaro körfustólum, eiturgrænu lakki, 19 tommu felgum og 305 hestöflum undir húddinu sem hefði átt að gefa honum góða vísbendingu um hvers bíllinn er megnugur.

Þó auðveldur í akstri

Það má þó ekki gleyma því að þó Ford Focus RS sé fyrst og fremst hugsaður til skemmtunar, og í því stendur hann sig augljóslega sérlega vel, þá er hann einnig afar auðveldur í akstri og það minntist Mick einnig á. Þrátt fyrir yfirdrifið aflið er grip framhjólanna sérlega mikið enda njóta þau hjálpar frá Quaife driflæsingum og að auki er fjöðrunin þannig að bíllinn lyftir afturhjóli í hörðum akstri, t.d. eins og á braut, og þannig er hægt að ná fram eiginleikum í akstri sem annars myndu bara tilheyra afturhjóladrifnum bílum.
Það er meðal annars vegna þessa sem Mick segir Ford Focus RS vera alltof skemmtilegan og því virðist sem að Ford hafi hitt beint í mark með hönnun sinni á hinum eiturgræna Focus RS.

Myndband af reynsluakstrinum á youtube

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli