Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | fös. 27. nóv. 2009

Ford Focus rafbíll (BEV) í tilraunastarfssemi með íbúum Lundúna

Íbúar Hillingdon í London munu fyrstir fá að kynnast Ford Focus rafbíl sem er ætlað mæta ströngum kröfum bresku ríkisstjórnarinnar til visthæfra bíla.
Breska ríkisstjórnin hyggst hleypa nýju kerfi af stokkunum á næsta ári sem mun opna dyr fyrir rafbíla í London og aðra bíla sem sleppa mjög litlu magni af CO2 út í andrúmsloftið.

Það eru fast að 20 heimili í Hillingdon hverfinu í Lundúnum sem munu taka þátt í verkefni sem kerfið verður byggt á og munu þátttakendur nota Ford Focus BEV í þrjá mánuði. Reynsluaksturinn mun útvega Ford mikilvægar upplýsingar sem verða notaðar við þróun evrópskra rafútgáfa af Ford bílum.

Athyglisverð framkvæmd

Framkvæmd verkefnisins er athyglisverð, sérstaklega í ljósi þess að Ísland væri kjörinn staður fyrir sambærileg verkefni. Fyrirkomulagið verður þannig að Hillingdon mun standa straum af því að koma upp hleðslustöðvum og öðru sem snýr að mannvirkjagerð fyrir rafbílana.

Miðað er við að mannvirkin verði klár í byrjun næsta árs og munu þeir sem taka þátt í reynsluakstrinum einnig fá hleðslustöðvar til að nota heima við.

Bílarnir eru úr þróunarflota Ford af rafbílum sem var upprunalega smíðaður fyrir samstarf Ford, Scottish & Southern Energy, Strathclyde háskóla og Lundúnaborg og markar notkun bílanna nokkur tímamót í sjálfbærum samgöngum. Markmið Ford er að þróa bílana fyrir Evrópu markað í þeirri von að innan tíðar muni rafbílar verða tæknilega markaðshæfir en þá ætlar Ford sér mikið forskot á samkeppnina.

Kostir í borgarakstri

Ford Focus BEV er í flestu eins og hver annar Ford Focus í notkun nema að því leiti að útblásturinn er enginn. Rafmótor bílsins er frá kanadíska fyrirtækinu Magna en Ford hefur átt í samstarfi við Magna um þróun rafbíla frá byrjun þessa árs. Tæknileg útfærsla bílsins er þannig að hann er útbúinn litíum rafhlöðum sem geta geymt 23 kílóvött og rafmótorinn sjálfur skilar 100 kílóvöttum. Með þessu móti er langdrægni bílsins um 120 kílómetrar á hleðslu sem er meira en tvisvar sinnum meðal akstur bíls á dag í Bretlandi. Hámarkshraði bílsins er 136 km/klst og aðeins tekur sex til átta tíma að ná fullri hleðslu með dæmigerðri innstungu sem er 220 volt.

Kostir slíkra bíla í Lundúnum yrðu æði miklir þar sem há gjöld eru greidd fyrir að aka í miðborginni vegna umferðarmengunar en rafbílar myndu sleppa við slík gjöld, draga úr hávaðamengun og ýta við fólki hvað umhverfismál varðar.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli