Viðskiptablaðið fékk slíkan bíl lánaðan frá Póstinum sem nýlega hafði keypt Ford Transit AWD með nýju aldrifskerfi frá Haldex. Bíllinn hefur almennt fengið góða dóma en var nú í fyrsta skiptið prófaður á Íslandi.
Í stuttu máli var blaðamaður Viðskiptablaðsins, Hörður Kristjánsson, afar ánægður með bílinn sem hann sagði vera í hæsta gæðaflokki og þægilegan í umgengni. Reyndar var það svo að Hörður var ófær um að „finna neitt sem ástæða þykir til að setja út á“.
Nú þegar snjóþyngsli eru orðin nokkur á Austurlandi má telja víst að starfsmenn Póstsins munu koma jólapóstinum til skila á nýja aldrifs Ford Transit bílnum – og það í fullkomnum þægindum að auki hvort sem snjóar eða ekki.
Reynsluaksturinn í Viðskiptablaðinu
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan