05. febrúar 2012
Ford
|
fös. 4. des. 2009
Reynslumikill Ford Transit Brimborgar fær mikilvægt hlutverk
Ford Transit er mikill dugnaðarforkur og fæst jafnvel fjórhjóladrifinn og hentar hann því afar vel við íslenskar aðstæður, og líka fyrir íslenska sjónvarpsþætti.
Ford Transit bílar hafa notið mikillar hylli allar götur frá því að þeir komu fyrst á markað, árið 1953, enda voru Ford Transit fyrstu sendibílarnir sem höfðu aksturseiginleika og þægindi á við hefðbundna fólksbíla og ekki spillti fyrir að þeir voru snöggir og liprir í notkun.
Síðan 1953 hafa hetjur og andhetjur einnig tekið ástfóstri við bílana. Þeir hafa verið notaðir sem flóttabílar við rán og sem sérsveitarbílar fyrir lögreglulið Evrópu. Hinn goðsagnakennda kappaksturshetja Stirling Moss notast við Ford Transit til að komast sinna ferða í miðborg London, enda löglegt að leggja sendibílum í skamma stund þar sem fólksbílar yrðu litnir hornauga – engin amast við sendbíl á óvenjulegum stað.
Ford Transit kemur oft við sögu
Þá hafa Ford Transit sendibílar leikið aðalhlutverk í kvikmyndum um Ólsen gengið danska, í myndböndum Robbie Williams, í sjónvarpsþáttunum um þýska lögregluhundinn Rex, bresku þáttunum um Inspector Morse og að sjálfsögðu koma Ford Transit bílar reglulega við sögu í breskum sjónvarpsþáttum eins og Fifth Gear og hinum alræmda Top Gear. Ford Transit bílar eru því Íslendingum að góðu kunnir.
Vera má að það sé þess vegna sem íslenska kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Filmus, sem sérhæfir sig í framleiðslu á sjónvarsauglýsingum fyrir innlendan og erlendan markað, leitaði til Brimborgar á dögunum þegar þeir þurftu sendibíl sem væri „hokinn af reynslu“.
Filmus sinnir meðal annars auglýsingaframleiðslu en einnig hefur Filmus framleitt sjónvarpsþætti eins og „Atvinnumennirnir okkar“ sem sýndir voru á Stöð 2 á þessu ári.
Verður „co-host“ með Villa Naglbít
Nú stendur til að koma nýrri og spennandi þáttaröð í loftið og í undirbúningi hjá Filmus er sjónvarpsþáttur sem án efa mun höfða til íslenskra sjónvarpsáhorfenda. Filmus hefur fengið til liðs við sig ókrýndan snilling fjölmiðlanna Vilhelm Anton Jónsson, sem oftast er kallaður Villi Naglbítur, og mun hann sem kynnir þáttarins bralla eitt og annað óvenjulegt.
Það er annars erfitt er að ná uppúr þeim félögum hjá Filmus um hvað þættirnir verða en miðað við umfangið og spennuna í loftinu er augljóst að mikið snilldarverk er að fara að líta dagsins ljós.
Það var okkur hjá Brimborg mikil ánægja þegar þeir Filmus bræður höfðu samband við okkur og sögðu okkur að Ford Transit sendibíll hefði orðið fyrir valinu og fengi þann heiður að vera "co-host" með honum Villa í þáttunum. Höfðu þeir valið bíl sem var „hokinn af reynslu“ sem áður segir og því afar hentugur í hlutverkið. Við erum þess fullviss að Ford Transit bíllinn mun örugglega leysa þetta mikla og flókna hlutverk af stakri fagmennsku eins og venjulega.
Nú í desember mun Filmus ráðast til upptöku á "pilot" þætti og mun svo koma í ljós fljótlega á nýju ári hvenær næstu þættir fara í upptökur. Á meðan bíðum við bara spennt eftir afrakstrinum.