Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

06. september 2010
Ford | fös. 11. des. 2009

Ford Fusion valinn bíll ársins 2010 í Bandaríkjunum af Motor Trend

Ford Fusion var valinn bíll ársins 2010 af Motor Trend í Bandaríkjunum.
Það voru engir aukvisar sem kepptu um fyrsta sætið í vali Motor Trend á bíl ársins 2010 í síðasta mánuði en til greina komu meðal annarra Toyota Prius, Nissan 370Z, BMW 7 línan, Buick LaCrosse, Toyota Prius, Porsche Panamera og Hyundai Genesis Coupe. Sá sem hreppti hnossið var hinsvegar Ford Fusion og naut hann almennrar hylli dómenda sem sögðu bílinn sýna enn og aftur hvers Ford væri megnugt við erfiðar aðstæður.

Bílamarkaðurinn vestanhafs hefur eins og annarsstaðar verið afskaplega erfiður síðastliðið ár. Dómarar Motor Trend telja að það sé einmitt við þær aðstæður sem bílaframleiðendur eins og Ford skari fram úr því Ford, öðrum fremur, tekst að framleiða bíl sem höfðar til breiðs hóps kaupenda.

Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Ford Fusion er mest seldi bandaríski fólksbíllinn og hefur sala hans verið það góð að í fyrsta skiptið í langan tíma hefur tekist að hreyfa við japönsku bílaframleiðendunum sem hafa lengi haft sterka stöðu með Honda Accord og Toyota Camry.

Góðir bílar verða ekki til upp úr þurru

Ford Fusion þykir vel heppnaður útlitslega og fæst bíllinn einnig í tvíorku útgáfu sem hefur notið mikilla vinsælda. Það virðist vera sem kaupendur visthæfu bílanna sé orðnir leiðir á visthæfum bílum með undarlegri hönnun og vilji nú fá visthæfa bíla sem skera sig úr á sömu forsendum og aðrir fólksbílar, fyrir góða hönnun – ekki eingöngu fyrir sérkennilega hönnun.

Ford Fusion er einmitt slíkur bíll og hefur Ford lagt áherslu á að vinsældir bílsins séu engin tilviljun. Bíllinn sé einfaldlega vel hannaður, vel smíðaður og því bæði hagkvæmur og skemmtilegur.

Bíllinn er talinn gott dæmi um hvað bandarískur bílaframleiðandi getur gert þegar skóinn kreppir að og má búast við að Ford muni bæta samkeppnisstöðu sína stanslaust á næsta ári í ljósi góðs árangurs á þessu ári.

Brimborg skoðar innflutning á Ford Fusion um þessar mundir með tilliti til vinsælda bílsins en þó er enn of snemmt til að segja til um hvort, eða hvenær af innflutningi getur orðið.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli